Verðlagsstofa hækkar hluta skiptaverðs
Stórýsa. Verðlagsstofa skiptaverðs hefur auglýst breytingu á skiptaverði slægðrar ýsu og á slægðum og óslægðum þorski. mbl.is/Þorkell Þorkelsson
Verðlagsstofa skiptaverðs hefur birt breytingu á viðmiðunarverði samkvæmt kjarasamningum sjómanna og útvegsmanna.
Breytingarnar eru eftirfarandi:
- Slægður þorskur hækkar um 2,6%
- Óslægður þorskur hækkar um 2,6%
- Slægð ýsa hækkar um 3,2%
- Óslægð ýsa helst óbreytt
- Slægður ufsi helst óbreyttur
- Óslægður ufsi helst óbreyttur
- Karfi helst óbreyttur
„Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. nóvember 2026,“ segir í auglýsingu Verðlagsstofu skiptaverðs.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗