Færir tíðindi af Alberti

Albert Guðmundsson hefur ekki spilað síðan hann meiddist í landsleik Íslands við Eistland undir lok septembermánaðar. Nú styttist í endurkomu hans.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður út í stöðu lykilmannsins á blaðamannafundi í dag, en Albert nær ekki að taka þátt í komandi leikjum gegn Búlgaríu og Lúxemborg.

Hann ætti þó að að geta spilað með Lazio, félaginu sem hann gekk til liðs við í sumar, á næstu vikum.

„Albert er á góðri bataleið og liðið að pressa mikið á að hann sé að spila. Það eru kannski 2-3 vikur í hann,“ sagði Arnar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅