Dóttir.x tilnefnd til evrópskra tónlistarverðlauna

Krista Hrönn Héðinsdóttir, betur þekkt sem dóttir.x, er meðal fimmtán tilnefndra til Music Moves Europe-verðlaunanna. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska tónlistarkonan Krista Hrönn Héðinsdóttir, betur þekkt undir listamannsnafninu dóttir.x, er meðal fimmtán upprennandi tónlistarmanna sem tilnefndir eru til Music Moves Europe-verðlaunanna árið 2027.

Tilnefningarnar voru kynntar á tónlistarhátíðinni Riga Music Week í dag.

Music Moves Europe-verðlaunin eru veitt af Evrópusambandinu með stuðningi Creative Europe og er markmið þeirra að vekja athygli á efnilegu tónlistarfólki í Evrópu og styðja það til frekari frama á alþjóðavettvangi.

Meðal þeirra sem áður hafa hlotið verðlaunin eru íslensku tónlistarmennirnir Ásgeir Trausti og hljómsveitin Of Monsters and Men, auk heimsþekktra listamanna á borð við Dua Lipa, Rosalíu, Stromae og Hozier.

Dóttir.x hefur vakið mikla athygli í tónlistarheiminum á undanförnum misserum og náð eftirtektarverðum árangri á skömmum tíma. Ljósmynd/Aðsend

Vakið athygli á alþjóðavettvangi

Dóttir.x hefur á skömmum tíma vakið töluverða athygli í rafpopptónlist. Tónlist hennar einkennist af persónulegum og einlægum textum sem fléttast saman við rafræna takta og skapa sérstæðan hljóðheim. Hún syngur bæði á íslensku og ensku og sækir meðal annars innblástur í íslenska náttúru.

Á síðasta ári hefur tónlist hennar fengið yfir milljón streymi og hún náð til um 100 þúsund mánaðarlegra hlustenda.

Smartland fjallaði um tónlistarkonuna í ágúst síðastliðnum, en þá hafði hún nýverið prýtt risaskjá Spotify á Times Square í New York.

Í viðtalinu ræddi Krista meðal annars um tónlistarferilinn, tengsl sín við Ísland og framtíðardraumana.

Krista, sem búsett er í Los Angeles, hóf útgáfuferil sinn í mars 2025 og hefur síðan einbeitt sér að tónlistinni. Hún lét engan bilbug á sér finna þegar talið barst að framtíðinni.

„Ég held bara áfram þangað til ég næ að gera allt sem mig dreymir um. Ég held áfram þangað til ég sigra heiminn,“ sagði hún í samtali við Smartland.

Keppir um verðlaun í Hollandi

Allir tilnefndu listamennirnir munu koma fram á tónlistarhátíðinni Eurosonic Noorderslag í Groningen í Hollandi dagana 13. til 16. janúar næstkomandi.

Þar munu þeir jafnframt taka þátt í sérstakri fræðsludagskrá og fá tækifæri til að mynda tengsl við fagfólk í evrópskum tónlistariðnaði.

Alþjóðleg dómnefnd velur fimm verðlaunahafa sem hljóta hver um sig 10 þúsund evrur, jafnvirði um 1,4 milljóna íslenskra króna. Handhafi aðalverðlauna dómnefndar fær auk þess 5.000 evra styrk til vistvæns tónleikaferðalags.

Fram undan eru spennandi tímar hjá dóttur.x sem mun stíga á svið á tónlistarhátíðinni Eurosonic Noorderslag í Hollandi í janúar. Ljósmynd/Aðsend

Almenningur getur kosið

Almenningi gefst jafnframt kostur á að velja sinn uppáhaldslistamann í sérstakri kosningu um áhorfendaverðlaunin.

Sigurvegari þeirra hlýtur 5.000 evrur, jafnvirði um 680 þúsund íslenskra króna, auk þess að fá tækifæri til að taka upp lag í hljóðveri Spotify í Stokkhólmi.

Kosningin stendur yfir til miðnættis 31. desember næstkomandi og er hægt að greiða atkvæði hér.

Sigurvegararnir verða kynntir við hátíðlega verðlaunaafhendingu í Groningen í Hollandi 14. janúar.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅