Segir marga hafa kosið með veskinu

Fólk greiðir atkvæði í Suður-Portland í Maine.

Fólk greiðir atkvæði í Suður-Portland í Maine. AFP/Angela Weiss

Það hversu umfangsmikill sigur Demókrataflokkksins var í bandarísku þingkosningunum kom Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur, stjórnmálafræðingi og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst, á óvart, enda sigurinn mun stærri en skoðanakannanir bentu til.

Hún segir að venjan hafi einnig verið sú að stuðningsmenn Repúblikanaflokksins, sérstaklega MAGA-armurinn, hafi verið vanmetnir í könnunum en nú virðist sem þær hafi ofmetið þessa kjósendur.

James Talarico bar sigur úr býtum í Texas.

James Talarico bar sigur úr býtum í Texas. AFP/Brandon Bell

„Þessi yfirburðasigur tryggði demókrötum ekki bara talsverðan meirihluta í bæði fulltrúadeildinni og öldungadeildinni heldur einnig í ríkisstjórakosningum víða. Þar eru til dæmis sigur demókrata í ríkisstjórakosningunum í Ohio og Texas afar eftirtektarverðir,“ segir Bryndís Ísfold aðspurð.

„Þá er eftirtektarvert að ótrúlegur fjáraustur Elon Musk gegn [James] Talarico í Texas bar ekki árangur en slíkar fjárhæðir gegn einum frambjóðanda hafa ekki sést áður. Þá er einnig vert að nefna velgengni frambjóðenda vinstri arms demókrata, eins og nýkjörna öldungadeildarþingmannsins Abdul Al Sayed. En þessi hópur fer ört vaxandi og vekur upp spurningar um hvort Alexandria Ocasio-Cortez, sem er á svipaðri línu, gæti verið vænlegur forsetaframbjóðandi fyrir flokkinn.

Ýmsar ástæður fyrir niðurstöðunni

Innt eftir helstu ástæðunum fyrir þessari niðurstöðu í kosningunum segir hún lífskjör Bandaríkjamanna hafa versnað síðan Trump og repúblikanar unnu mikinn sigur fyrir tveimur árum.

„Kjósendur sjá að það er bein tenging við ákvarðanir forsetans eins og að setja tolla og svo auðvitað stríðið við Íran, við verðhækkanir og verðbólgu. Margir kusu því með veskinu. En það er þó ekki eina ástæðan, því áhyggjur af framtíð lýðræðis og spillingarmálum, sem og framferði ICE-liða, mældist einnig ofarlega á blaði hjá kjósendum,“ svarar hún.

Donald Trump á fjöldafundi í aðdraganda kosninganna.

Donald Trump á fjöldafundi í aðdraganda kosninganna. AFP

Bryndís telur margt eiga eftir að koma betur í ljós. Svo virðist þó sem fólk af rómönskum uppruna og hópur svartra karla sem oftast hafa kosið demókrata en kusu Trump síðast hafi víða kosið demókrata núna.

Gæti reynt að beita valdi sem hann hefur ekki 

Spurð út í framhaldið í Bandaríkjunum og hvort þingið geti sett auknar hömlur á Trump segir hún að forseti sem tapi báðum þingdeildunum þurfi að semja um fjárlög við andstæðinga sína.

„Það er alveg ljóst að þingið getur bundið hendur hans að miklu leyti en Trump er vís til að láta það ekki stoppa sig. Mér finnst líklegt að hann muni reyna verulega á núverandi stjórnskipan landsins og stjórnarskrána með því að reyna að reyna að beita valdi sem hann ekki hefur,“ greinir Bryndís frá en bendir á að þingið geti núna ákært Trump vegna fyrri gjörða hans í embætti þar sem hann hafi farið út fyrir valdsvið sitt eða misbeitt valdi sínu. Þar sé af nógu að taka.

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir.

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Getur þetta haft einhverjar breytingar í för með sér fyrir Evrópu?

„Hugsanlega verða orð forsetans ekki tekin jafn alvarlega af öðrum leiðtogum þar sem nú styttist í annan endann á forsetatíð hans, auk þess sem völd hans hafa skerst mjög með sigri demókrata í báðum deildum. Því má þó ekki gleyma að hann er einn æðsti yfirmaður heraflans og því fylgja ótvíræð völd,“ svarar hún.

Bandaríska þinghúsið við sólarupprás.

Bandaríska þinghúsið við sólarupprás. AFP/Roberto Schmidt

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅