Satanistar unnu dómsmál í Bandaríkjunum - Fá að halda hátíð

Kristinn H. Guðnason

Miðvikudaginn 4. nóvember 2026 16:30

Satanistar segjast ekki trúa á Satan sem veru heldur sé hann tákn um uppreisn einstaklingsins gegn oki harðræðis. Mynd/Getty

Alríkisdómari hefur fyrirskipað Iowa fylki að leyfa satanistum að halda hátíð við þinghúsið. Fylkið hefur streist á á móti í mörg ár.

Breska blaðið The Guardian greinir frá þessu.

Á mánudag úrskurðaði alríkisdómstóll í Bandaríkjunum að Iowa fylki væri skylt að leyfa satanistum í reglunni Satanic Temple, að halda viðburð í hringlaga hvelfingu við þinghúsið í Des Moines, höfuðstað Iowa.

Fylkið hefur streist á móti í áraraðir og sagt að ekki komi til greina að leyfa „viðurstyggilegar athafnir“ og „upphafningu ofbeldis“ við þinghúsið. Hafa Repúblikanar í Iowa heitið því að áfrýja málinu en eftir stóra ósigra í þingkosningunum í nótt er óvíst hvaða bolmagn þeir hafa til þess.

Sjá einnig:

Allt á annan endann þegar sveitarstjórnarmaður tilbað djöfulinn á fundi – „Heill þér Satan“

Satanistarnir hafa sakað Iowa fylki um að brjóta á málfrelsi þeirra sem og trúfrelsi. Hópurinn segist í raun ekki trúa á Satan sem veru, heldur að hann sé táknmynd fyrir frelsið. Í grunninn séu satanistarnir því trúlausir og berjast fyrir aðskilnaði ríkis og kirkju.

Frelsi einstaklingsins

„Satan er tákn hins eilífa uppreisnarmanns sem stendur gegn geðþóttavaldi og ver alltaf sjálfsforræði einstaklingsins, jafnvel þegar við ofurefli er að etja,“ segir í tilkynningu safnaðarins. „Satanistar fylgja meginreglum um frelsi einstaklingsins og höfnun á harðstjórnarlegu valdi.“

Athafnir þeirra felast ekki í fórnum á manneskjum eða geitum. Heldur um þjóðlega búninga, söngva, skreytingar og skemmtanir fyrir börn.

Satanistar hafa áður haldið trúarathafnir í Iowa. Meðal annars við þinghúsið árið 2023 en kristinn öfgamaður vann skemmdarverk á eignum safnaðarins. Charlie Kirk, hinn látni áhrifavaldur, studdi skemmdarvarginn með fjárframlögum þegar hann var sóttur til saka.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅