Orðið á götunni: Excel-æfing borgarstjóra byggir á ímyndunarafli og óskhyggju
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, ber sér á brjóst og segir nýjan meirihluta hafa tekið við mjög slæmu búi í Reykjavík eftir mikla óstjórn Samfylkingarinnar um árabil. Hún hreykir sér af því að hafa tekið til hendinni og skorið niður og sé tilbúin í frekari niðurskurð. Þá spáir hún rekstrarafgangi strax á næsta ári
Orðið á götunni er að fullyrðingar Hildar um slæma stöðu Reykjavíkurborgar séu í besta falli mjög orðum auknar. Í tilkynningu frá Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík, er bent á að hallinn af rekstri borgarinnar á fyrri hluta ársins hafi numið 22 þúsund krónum á hvern íbúa. Í Garðabæ var hallinn 29 þúsund á hvern íbúa, 72 þúsund í Hafnarfirði og 113 þúsund á Seltjarnarnesi.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur stjórnað þessum þremur sveitarfélögum um árabil og því mætti draga þá ályktun að mögulega sé flokkurinn ekki sá heppilegasti til að ná jafnvægi á rekstur sveitarfélaga.
Orðið á götunni er að fjárhagsáætlun meirihlutans í Reykjavík, sem gerir ráð fyrir rekstrarafgangi upp á 2,8 milljarða og þar með viðsnúningi upp á 9,4 milljarða viðsnúningi frá árinu í ár byggist meira á óskhyggju og ímyndunarafli en raunsæi. Þessi áætlun byggir á því að ekki þurfi að gjaldfæra háar fjárhæðir hjá Félagsbústöðum eins og á þessu ári heldur muni verða mögulegt að búa til tekjufærslu þar. Staða efnahagsmála og ástandið á húsnæðismarkaði gefur ekki tilefni til slíkrar bjartsýni. Reynslan sýnir að virðisbreytingar húsnæðis geta sett mikið strik í reikninginn þegar á móti blæs.
Orðið á götunni er áform meirihlutans um sparnað á næsta ári vegna hagræðingar (lesist uppsagna starfsfólks) sé sýnd veiði en ekki gefin. Fullt af fólki hefur verið sagt upp en í sumum tilfellum hefur þurft að endurráða fólk og ýmis verkefni, sem áður var sinnt af borgarstarfsmönnum, þarf nú að kaupa frá utanaðkomandi aðilum.
Orðið á götunni er að fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir 2027 minni helst á bjartsýnustu excel-æfingar sem sáust gjarnan á uppgangsárunum fyrir hrun. Í excel er hægt að fá hvaða niðurstöðu sem er, allt eftir því hvaða forsendur fólk gefur sér. Svo standa menn einfaldlega frammi fyrir veruleikanum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗