Vonast eftir auknum þrýstingi á Rússland

Erlent | AFP | 4.11.2026 | 15:50

Kaja Kallas á fundi í október.

Kaja Kallas á fundi í október. AFP/Thomas Samson

Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagðist í dag vona að nýtt Bandaríkjaþing myndi styðja Úkraínu og auka þrýsting á Rússland eftir að demókratar unnu stórsigur á repúblikönum Donalds Trump forseta í þingkosningunum.

„Ég vona að nýja þingið... haldi áfram að styðja Úkraínu og auki jafnframt þrýstinginn á Rússland,“ sagði Kallas og bætti við að Evrópa og Bandaríkin væru „mun sterkari saman“ í því að þrýsta á Rússa að binda enda á stríð sitt.

Bandaríkjaþing.

Bandaríkjaþing. AFP/Tom Brenner

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅