Fullt af litlum hlutum sem gera hópinn sterkari
„Mér líst mjög vel á þetta verkefni,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, í samtali við mbl.is í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í dag.
Íslenska liðið mætir Búlgaríu í Sofiu þann 13. nóvember og loks Lúxemborg á Laugardalsvelli þann 16. nóvember en Ísland er með 8 stig í efsta sæti riðilsins, Eistland er með 6 stig, Búlgaría fjögur og Lúxemborg þrjú.
Tveir erfiðir leikir
„Þetta eru erfiðir leikir. Bæði lið eru örugglega mjög ósátt við hvernig riðillinn hefur þróast, sérstaklega Lúxemborg. Þeir gerðu sér miklar vonir og unnu fyrsta leikinn sannfærandi á móti Búlgurum. Þeir hugsuðu sér því auðvitað gott til glóðarinnar þegar þeir mættu okkur enda ekki langt síðan þeir unnu okkur 3:1 að mig minnir. Við sýndum hins vegar okkar sterkustu hliðar í leiknum gegn þeim og síðan hefur leiðin í raun legið niður á við hjá þeim.
Búlgarska liðið á líka inni góða frammistöðu. Þeir eru með nýjan þjálfara og þá er tvennt sem kemur til greina, annaðhvort gefast þeir upp eða sýna nýja karlinum í brúnni sínar sterkustu hliðar og það gerðu þeir í síðasta leik. Þetta er erfiður útileikur, en það er eitthvað sem segir manni að við munum klára þetta úti í Búlgaríu og halda svo partí hérna á Laugardalsvelli 16. nóvember,“ sagði Arnar.
Fullt af jákvæðum hlutum
Íslenska liðið fékk átta stig af tólf mögulegum í síðasta landsleikjaglugga eftir sigra gegn Lúxemborg og Búlgaríu en liðið gerði tvívegis jafntefli við Eistland.
„Það er fullt af jákvæðum hlutum sem við getum tekið með okkur úr síðasta glugga. Við fengum bara eitt mark á okkur og ekki mörg færi, heilt yfir. Þau færi sem við fengum á okkur komu eiginlega bara til vegna eigin mistaka. Á móti sköpuðum við okkur mikið af færum og tölfræði liðsins úr síðasta glugga var mjög heilbrigð hjá liði sem ætlar sér einhverja hluti.
Þá stigu leikmenn upp eins og Stefán Teitur Þórðarson. Það er ekki sjálfgefið að menn færi sig af miðjunni í miðvarðastöðuna og standi sig jafnvel og hann gerði. Mikael Neville var líka frábær í bakverðinum. Það er fullt af svona litlum hlutum sem gera hópinn sterkari,“ sagði Arnar í samtali við mbl.is.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗