Íman gagnrýnir umfjöllun Moggans og Stefáns Einars - Spyr hvers vegna allir þurfi að svara fyrir skoðanir eins

Morgunblaðið hefur undanfarið fjallað ítarlega um málefni pakistanska klerksins og sjaríadómarans Mohammad Taqi Usmani sem nýlega kom til Íslands og heimsótti Stórmoskuna. Usmani er múslimi með umdeildar skoðanir en hann telur meðal annars réttlætanlegt að í ríkjum þar sem löggjöf byggir á íslamskri trú sé dauðarefsingu beitt fyrir trúarfráhvarf og fyrir kynmök samkynhneigðra. Heimsókn hans hefur því vakið reiði og hafa margir kallað eftir því að Ísland hætti að taka á móti múslimskum innflytjendum og flóttamönnum.

Mansoor Ahmad Malik er íman og forstöðumaður samfélags Ahmadiyya-múslima á Íslandi. Hann veltir því fyrir sér á hvaða vegferð Morgunblaðið er og hvers vegna það sé svo að allir múslimar þurfi að svara fyrir skoðanir manns eins og Usmani. Tekur Mansoor fram í aðsendri grein hjá Vísi að hann taki heilshugar undir með þeim sem hafa gagnrýnt og andmælt skoðunum Usmani. Það sama eigi við um samfélag Ahmadiyya-múslima á Íslandi.

„Slíkar hugmyndir eiga ekkert erindi á Íslandi, né heldur í því sem sumir kjósa að kalla „hinn siðmenntaða vestræna heim“. Raunar myndi ég ganga svo langt að segja að þær eigi hvergi rétt á sér.“

Hugsi yfir umræðunni

Að þessu sögðu er Mansoor þó hugsi yfir þeirri umræðu sem hófst hér á landi í kjölfar heimsóknarinnar þar sem Morgunblaðið og blaðamaðurinn Stefán Einar Stefánsson hafi farið fremst í flokki.

„Eftir að hafa fylgst með umræðunni og þeirri umfangsmiklu fjölmiðlaumfjöllun sem heimsóknin hefur hlotið hef ég hins vegar farið að velta fyrir mér hvernig þessi umræða hefur þróast, ekki síst hlutverki MBL og blaðamannsins Stefáns E. Stefánssonar í að móta hana.

Áhyggjur mínar snúast ekki um það að skoðanir Usmani hafi verið gagnrýndar. Það er sjálfsagt og eðlilegt. Áhyggjur mínar snúast hins vegar um hversu auðveldlega gagnrýni á einn einstakling getur breyst í tortryggni í garð heils trúarsamfélags.“

Biblían skuggaleg án samhengis

Umfjöllun sem þessi sé til þess fallin að ala á sundrung. Öfgafullar skoðanir sé að finna í öllum trúarbrögðum og það sé ósanngjarnt að tengja alla fylgjendur trúar við öfgafyllsta hópinn. Mansoor bendir á að það að eitthvað sé að finna í trúarritum múslima sem án samhengis geti vakið óhug segi ekkert um trúarbrögðin almennt.

Máli sínu til stuðnings bendir hann á að í biblíunni megi finna ýmislegt sem án samhengis þætti í dag öfgafullt, til dæmis að grýta eigi þá til dauða sem reyna að tæla þig frá Drottni, að karlmaður sem leggst með öðrum karlmanni skuli líflátinn, að brenna eigi á báli prestsdætur sem eru skækjur og að konur skuli þegja á safnaðarsamkomum. Þessi orð biblíunnar eigi þó ekki að leiða til þess að allir sem á hana trúa þurfi að afneita þessum kenningum opinberlega eða sæta sérstakri bakgrunnsskoðun vegna trúar sinnar.

Skoðanir Usmani hafa í umræðunni verið eignaðar öllum múslimum á Íslandi og óháð því hvort þeir eru þeim sammála eða ekki hefur þess verið krafist að þeir afneiti Usmani opinberlega.

Hvers vegna bara múslimar?

Veltir Mansoor því fyrir sér hvers vegna þetta gerist bara þegar um múslima er að ræða en ekki þegar aðrir aðilar með umdeildar skoðanir koma til Íslands. Nefnir hann sem dæmi rabbíann Shmuley Boteach og son hans sem komu til Íslands, eins og frægt er orðið, í sumar.

„Sætti heimsókn þeirra jafn ítarlegri opinberri skoðun af hálfu MBL, stjórnmálamanna eða trúarleiðtoga? Voru sambærilegar spurningar bornar upp um skoðanir þeirra og tengsl? Var þeim sem tóku á móti þeim eða áttu fundi með þeim gert að réttlæta opinberlega komu þeirra? Og kannski enn mikilvægara: voru fréttir um heimsókn þeirra settar fram sem spurning um hvort kenningar gyðingdóms samrýmist íslenskum gildum?“

Mansoor segist ekki kalla eftir því að allir séu gagnrýndir með sama hætti og múslimar. Hann vill þó að fólk velti því fyrir sér hvort það sé sanngjarnt að eitt trúfélag þurfi að sæta tortryggni umfram önnur.

„Ef við fordæmum skoðanir og tengsl eins múslimsks trúarleiðtoga verðum við einnig að vera reiðubúin til að athuga skoðanir og tengsl annarra með sama hætti, hvort sem um sé að ræða kristna, gyðinga, múslima eða fólk sem aðhyllist engin trúarbrögð. Grundvallarreglur okkar ættu ekki að breytast eftir því hver sætir gagnrýni hverju sinni.“

Byggja brýr og leiðrétta ranghugmyndir

Ímaninum þykir það svo sérstaklega svekkjandi að umfjöllun fjölmiðla um íslam beinist fyrst og fremst að deilum, öfgum og þeirri túlkun trúarinnar sem veldur mestri sundrung. Minni athygli fær hversdagslíf múslima, samfélög þeirra og starfið sem þau inna af hendi í íslensku samfélagi.

Samfélag Ahmadiyya-múslima á Íslandi hefur í rúman áratug unnið að því að leiðrétta ranghugmyndir um íslam og byggja brýr á milli fólks af ólíkum uppruna og trúarbrögðum. Samfélag þeirra hefur skipulagt friðarmálþing, átt í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar við að útbúa kvöldverð fyrir fólk í neyð og hádegisverð fyrir konur í Skjólinu. Þau hafa skipulagt hreinsunarátak í Hólavallagarði þegar kirkjugarðurinn er þakinn laufum. Þau hafa skipulagt blóðsafnanir og hvatt fólk til að gefa blóð.

„Sjálfur hef ég gefið blóð 26 sinnum og stefni að því að ná hundrað blóðgjöfum, ef Guð leyfir!“

Þau hafa tekið þátt í góðgerðarverkefnum utan landssteinanna, svo sem með hjólreiðaferð frá Dyflinni til Suður-Englands þar sem 361 þúsund krónum var safnað til styrktar Krafti.

„Eitt af þeim verkefnum sem mér þykir sérstaklega vænt um er barnabiðstofa á Landspítala í Fossvogi, sem meðlimir samfélagsins okkar hjálpuðu til við að skreyta og mála. Næst þegar þið farið þangað með börnin ykkar og takið eftir fjöllunum sem máluð eru á veggnum – við gerðum þetta!

Og frá árinu 2013 hafa meðlimir samfélagsins heimsótt barnaspítala á hverjum einustu jólum og gefið gjafir börnunum sem þurfa að liggja á spítalanum og geta ekki farið heim og verið hjá fjölskyldum sínum.“

Þetta hafa þau ekki gert til að hljóta viðurkenningu eða sanna að þau eigi skilið að vera hluti af íslensku samfélagi. Þetta gera þau því trú þeirra kennir náungakærleik, góðvild og umhyggju.

Hvers vegna eiga allir að svara fyrir einn?

Mansoor bendir svo á eitt sem oft gleymist. Múslimar eru ekki einsleitur hópur, rétt eins og kristnir, en sem dæmi má nefna að tugir kristinna trúfélaga eru skráð hér á landi.

„Við höfum ólíkar skoðanir, hefðir, reynslu og sjónarmið, rétt eins og fólk sem tilheyrir öðrum trúarbrögðum. Samt virðist svo stór hluti þessarar fjölbreytni hverfa þegar opinber umræða beinist nær eingöngu að umdeildum einstaklingum og öfgafullum túlkunum.“

Ef aðeins brot af þeirri fyrirhöfn sem lögð er í að fjalla neikvætt um múslima væri varið í að tala um jákvæðu hliðar trúar þeirra þá telur Mansoor að margir gætu uppgötvað að við eigum mun meira sameiginlegt en okkur grunar.

„Því þegar öllu er á botninn hvolft er spurningin ekki sú hvort gagnrýna eigi Muhammad Taqi Usmani. Spurningin er: þegar einn múslimi talar eða hegðar sér með tilteknum hætti hvers vegna þurfa svo margir aðrir að svara fyrir hann?“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅