„Það er ástæða fyrir því að sumir eiga meiri peninga en aðrir“
Marta María Winkel segir Eddu Gunnlaugsdóttur skemmtilega sögu frá því þegar hún bauð Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, á viðburð í Lundúnum á dögunum í nýjasta þætti Dagmála.
„Ég elska Dorrit og ég bauð henni með mér á viðburð hjá íslenskum fiskútflytjendum í Lundúnum. Þetta var hluti af Taste of Iceland-hátíðinni,“ segir Marta María.
Á hátíðinni var boðið upp á djúpsteiktan þorsk og franskar, eða Fish & Chips, á íslenskan máta.
„Þetta var alveg stjarnfræðilega gott og Dorrit var ótrúlega ánægð með þetta. Svo segir hún eitthvað svona: „Bíddu, þarf ég ekki að borga fyrir þetta?“ og ég svara því neitandi og að þetta sé í boði.
Þá sagðist hún ætla að hringja í mömmu sína til að athuga hvort hún væri svöng,“ segir Marta María og hlær.
„Ég hugsaði bara: „Ókei, það er ástæða fyrir því að sumir eiga meiri peninga en aðrir. Það er nákvæmlega þetta,““ segir hún.
Hér fyrir neðan er hægt að horfa á þáttinn í heild sinni.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗