Mest seldi nýi bíllinn í október

Í tilkynningu Heklu segir að árangur Elroq endurspegli góðar viðtökur bílsins hér á landi og auknar vinsældir Skoda. Ljósmynd/Aðsend

Skoda Elroq var mest seldi nýi bíllinn á Íslandi í október, en alls voru 50 bílar af þeirri gerð nýskráðir í mánuðinum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bílaumboðinu Heklu.

Mjótt var á mununum á milli þriggja mest seldu bílanna. Toyota BZ4X Touring var í öðru sæti með 46 nýskráningar og BYD Sealion 7 í því þriðja með 45. Aðeins fimm nýskráningar skildu því að fyrsta og þriðja sætið.

Allir þrír bílarnir eru rafbílar.

Stærsti sölumánuður ársins til einstaklinga

Október var langstærsti sölumánuður ársins á íslenskum bílamarkaði þegar litið er til sölu til einstaklinga, en alls voru 863 nýir bílar seldir til einstaklinga í mánuðinum, samkvæmt upplýsingum Heklu.

Mánuðurinn var jafnframt sá síðasti áður en breytingar á orkustyrk vegna kaupa á rafbílum tóku gildi 1. nóvember.

Við breytingarnar lækkaði hámarksverð þeirra fólksbíla sem geta hlotið styrk úr tíu milljónum króna í átta milljónir. Þá lækkaði styrkfjárhæðin úr 500 þúsund krónum í 400 þúsund.

Kaupendur gátu því nýtt sér hærri styrkfjárhæð og rýmri verðmörk í síðasta sinn í október.

Nýtt flaggskip væntanlegt í desember

Í tilkynningu Heklu segir að árangur Elroq endurspegli góðar viðtökur bílsins hér á landi og auknar vinsældir Skoda.

„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá Elroq ná toppsætinu í jafn sterkum mánuði fyrir rafbílamarkaðinn,“ segir Jón Kristófer Stefán Jónsson, vörumerkjastjóri Skoda, í tilkynningunni.

Hann segir bílinn henta vel íslenskum aðstæðum, meðal annars vegna þess að hann sé fáanlegur fjórhjóladrifinn og með mikla veghæð.

Jón Kristófer segir jafnframt að Elroq hafi notið vinsælda víða í Evrópu og að mikill áhugi sé hér á landi á nýjungum frá Skoda.

Þar nefnir hann sérstaklega nýtt flaggskip framleiðandans, Skoda PEAQ, sem er væntanlegt til afhendingar á Íslandi í desember.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅