Vill sjá Orra og Andra saman hjá United

Arnar var léttur á blaðamannafundi í dag.

Arnar var léttur á blaðamannafundi í dag. mbl.is/Karítas

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, vill sjá landsliðsframherjana Andra Lucas Guðjohnsen og Orra Stein Óskarsson saman hjá enska liðinu Manchester United.

„Ég á mér draum um að sjá báða framherjana komast í ensku úrvalsdeildina fyrr en varir,“ sagði Arnar á blaðamannafundi í dag og hélt áfram:

„Vonandi spila þeir báðir fyrir mitt lið, Manchester United, ekki veitir af,“ bætti hann við léttur.

Andri hefur verið sjóðheitur með Blackburn í ensku B-deildinni og skorað níu mörk í þrettán leikjum. Orri hefur skorað fjögur mörk í tólf leikjum með Real Sociedad á Spáni.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅