Vill sjá Orra og Andra saman hjá United
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, vill sjá landsliðsframherjana Andra Lucas Guðjohnsen og Orra Stein Óskarsson saman hjá enska liðinu Manchester United.
„Ég á mér draum um að sjá báða framherjana komast í ensku úrvalsdeildina fyrr en varir,“ sagði Arnar á blaðamannafundi í dag og hélt áfram:
„Vonandi spila þeir báðir fyrir mitt lið, Manchester United, ekki veitir af,“ bætti hann við léttur.
Andri hefur verið sjóðheitur með Blackburn í ensku B-deildinni og skorað níu mörk í þrettán leikjum. Orri hefur skorað fjögur mörk í tólf leikjum með Real Sociedad á Spáni.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗