Óvænt hættur eftir gott gengi - Tekur við öðru liði

Helgi Fannar Sigurðsson

Miðvikudaginn 4. nóvember 2026 16:00

Paulo Fonseca/ Getty Images

Paulo Fonseca er hættur sem stjóri Lyon og er tekinn við Sporting í Portúgal.

Portúgalinn, sem er 53 ára gamall, hafði stýrt Lyon frá því í janúar 2025 og var samningsbundinn félaginu til næsta sumars. Sporting greiðir fimm milljónir evra fyrir að losa hann undan samningi.

Lyon er í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar, aðeins þremur stigum á eftir PSG, og kemur brotthvarf Fonseca því nokkuð á óvart.

Í yfirlýsingu segist Lyon harma ákvörðun stjórans, sérstaklega tímasetningu hennar.

Fonseca tekur við af Rui Borges hjá Sporting en Jorge Maciel, aðstoðarmaður hans hjá Lyon, stýrir franska liðinu tímabundið.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅