Vilja byggja heimavist við FSu
Engin heimavist er í boði fyrir nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu) á yfirstandandi skólaári eftir að ekki tókst að finna viðeigandi húsnæði. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja að ráðist verði í uppbyggingu varanlegrar heimavistar í samstarfi opinberra aðila og einkaaðila.
Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu sem lögð hefur verið fram á Alþingi. Tillagan gerir ráð fyrir að einkaaðilar geti komið að fjármögnun, uppbyggingu og eftir atvikum rekstri heimavistarinnar, sem nýtt yrði fyrir ferðamenn yfir sumarmánuðina.
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, fyrsti flutningsmaður tillögunnar, sagði í framsöguræðu á Alþingi í dag að staðan væri óviðunandi, enda stundi rúmlega 1.100 nemendur nám við skólann, víðs vegar að af Suðurlandi og annars staðar af landinu.
Hún sagði heimavist við skólann mikilvæga forsendu þess að tryggja ungmennum jafnan aðgang að framhaldsskólamenntun, óháð búsetu og efnahag. Nemendur úr dreifbýli stæðu ella frammi fyrir því að þurfa að ferðast langar vegalengdir daglega, leita húsnæðis á almennum leigumarkaði eða velja annan skóla en þann sem best hentaði námsáformum þeirra.
Varanleg heimavist myndi jafnframt styrkja byggð á Suðurlandi og skapa nemendum öruggt og stöðugt námsumhverfi í stað þeirra ófullnægjandi og tímabundnu húsnæðisúrræða sem skólinn hefði þurft að reiða sig á undanfarin ár.
Frá ófullnægjandi úrræðum í enga heimavist
Ingveldur rifjaði upp að heimavistarmál skólans hefðu verið í ólestri um árabil. Heimavist var starfrækt á Selfossi til ársins 2016, þegar leigusamningur rann út. Fjórum árum síðar var samið um afnot af húsnæði sem einnig var nýtt fyrir ferðamenn og um tíma farandverkamenn.
Í skriflegu svari þáverandi mennta- og barnamálaráðherra á síðasta löggjafarþingi hefði komið fram að aðstaða nemenda væri ófullnægjandi, meðal annars vegna skorts á mötuneyti, takmarkaðrar stoðþjónustu og þess að heimavistin væri almennt lokuð um helgar.
„Við höfum í raun verið að leysa sama vandamálið aftur og aftur með skringilegum lausnum,“ sagði Ingveldur og spurði hvort ekki væri kominn tími til að ráðast í varanlega uppbyggingu.
Ferðamenn nýti húsnæðið á sumrin
Samkvæmt tillögunni yrði gerður langtímaleigusamningur við hið opinbera um afnot af heimavistinni yfir skólaárið, en húsnæðið nýtt til ferðaþjónustu á sumrin.
Með því mætti skapa fjárhagslegan grundvöll fyrir þátttöku einkaaðila og flýta framkvæmdum án þess að ríkið þyrfti sjálft að fjármagna alla uppbygginguna.
Ingveldur lagði þó áherslu á að tryggja yrði nemendum öruggt húsnæði, viðeigandi námsaðstöðu, félagsrými og stuðning, auk þess sem skýrt þyrfti að liggja fyrir hvernig helgardvöl yrði háttað.
„Það er ekki þar með sagt að ríkið þurfi sjálft að eiga hverja einustu byggingu sem nýtt er í þágu opinberrar þjónustu,“ sagði Ingveldur.
Tillagan var áður lögð fram árið 2025 en hlaut ekki afgreiðslu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗