Sjóður tengdur Dell fjárfestir á Bakka
Michael Esfandi frá JNE Partners, Michael Ozersky frá EyrieDC, Þóra Helgadóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá EyrieDC, Tom Frost, forstjóri EyrieDC og Aly Patel frá JNE Partners. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Sjóður í stýringu fjárfestingarfélagsins JNE Partners hefur ráðist í umtalsverða langtímafjárfestingu í EyrieDC, sem vinnur að uppbyggingu gagnavers á Bakka við Húsavík.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
JNE Partners er að hluta í eigu bandaríska milljarðamæringsins og tæknifrumkvöðulsins Michael Dell stofnanda Dell Technologies sem framleiðir samnefndar tölvur.
„Með fjárfestingunni kemur JNE inn í hluthafahóp félagsins. Hún styrkir fjárhagslegan grunn verkefnisins og styður við áframhaldandi undirbúning framkvæmda, meðal annars með ráðningu lykilstarfsfólks,“ segir í tilkynningunni.
JNE hefur áður fjárfest í íslenskum fyrirtækjum. Félagið kom fyrst inn í hluthafahóp Marels árið 2017 og fjárfesti í Eyri Invest árið 2022.
Höfuðstöðvar í London
JNE Partners er með höfuðstöðvar í London og um 1,4 milljarða Bandaríkjadala í stýringu. Félagið leggur áherslu á langtímafjárfestingar í Evrópu. Það var stofnað árið 2006 innan MSD Capital, sem annaðist fjárfestingar fyrir Michael Dell og fjölskyldu hans. JNE Partners varð sjálfstætt árið 2019. Síðan þá hefur fjárfestahópurinn breikkað. Auk fjölskyldufjárfestingarfélags Dell eru nú meðal fjárfesta bandarískir lífeyrissjóðir, háskóla- og styrktarsjóðir ásamt öðrum alþjóðlegum fjárfestingarfélögum.
„Við þekkjum íslenskan markað vel í gegnum fyrri fjárfestingar okkar hér á landi. Við höfum mikla trú á stöðugleika íslenska hagkerfisins, vaxtarmöguleikum þess og hæfni fólksins hér á landi. Undanfarna mánuði höfum við unnið náið með teymi EyrieDC. Við höfum kynnt okkur starfsemi félagsins ítarlega og metið tækifærin sem felast í verkefninu. Það samstarf hefur styrkt trú okkar á verkefnið og fólkið sem að því stendur. Við komum að félaginu sem langtímafjárfestir og samstarfsaðili. Markmið okkar er að styðja það frá þróun til framkvæmda og rekstrar,“ segir Jonathan Esfandi fjárfestingastjóri JNE Partners í tilkynningunni.
Uppbygging í fjórum áföngum
Í tilkynningunni segir að EyrieDC hafi unnið að þróun verkefnisins í meira en tvö ár. Gert er ráð fyrir að heildarafkastageta gagnaversins verði 120 MW og verður það byggt upp í fjórum 30 MW áföngum. Áætlaður heildarkostnaður við uppbygginguna er nálægt einum milljarði Bandaríkjadala. Þar er ekki meðtalin fjárfesting viðskiptavinar EyrieDC í upplýsingatæknibúnaði, sem mun að öllum líkindum nema margfaldri þeirri fjárhæð samkvæmt tilkynningunni.
Samkvæmt áætlunum félagsins er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist árið 2027 og rekstur fyrsta áfanga árið 2028. Þegar framkvæmdir standa sem hæst er gert ráð fyrir að 400-500 manns starfi við uppbygginguna. Í fullum rekstri er gert ráð fyrir um 50 föstum störfum.
Við staðarvalið var meðal annars horft til þeirra umfangsmiklu innviða sem þegar eru til staðar á Bakka og í nágrenni svæðisins. Þar má nefna höfnina, göngin, flutningskerfi raforku og nálægð við raforkuframleiðslu. Samstarf við sveitarfélagið Norðurþing vó einnig þungt.
Öflugur langtímafjárfestir
„Fjárfesting JNE Partners markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu EyrieDC. Við fáum til liðs við okkur öflugan langtímafjárfesti með mikla þekkingu á Íslandi sem hefur reynslu af fjárfestingum í tæknilegum innviðum. Fjárfestingin styrkir undirbúning gagnaversins á Bakka og leggur traustan fjárhagslegan grunn að starfseminni til framtíðar,“ segir Tom Frost, forstjóri EyrieDC í tilkynningunni.
Akur Capital stendur að þróun EyrieDC. Teymið hefur yfir 20 ára reynslu af þróun orkuverkefna og stafrænna innviða á alþjóðavísu samkvæmt tilkynningunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
