Friðrik stýrir hóp sem greinir eignarhald útlendinga

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað sérfræðihóp sem er falið það verkefni að greina eignarhald erlendra aðila á jörðum hérlendis. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu. 

Friðrik Árni Friðriksson Hirst er formaður hópsins en Friðrik er aðjúkt við lagadeild Háskóla Íslands. 

Jarðalögum verður breytt

Hópurinn er skipaður á grundvelli þingsályktunartillögu Höllu Hrundar Logadóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, sem samþykkt var í vor. Í þingsályktunartillögunni segir að hún sé lögð fram í ljósi langtímahagsmuna Íslands í auðlindamálum. 

Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili skýrslu sem lögð verður fram á Alþingi. Mun skýrslan svo verða nýtt sem innlegg í fyrirhugað frumvarp um breytingar á jarðalögum sem Hanna Katrín hyggst leggja fram. 

Áformað er að starfhópurinn taki til starfa síðar í mánuðinum og skili fyrir 1. mars skýrslunni fyrrnefndu.

Auk Friðriks skipa eftirfarandi hópinn:

  • Kristín Ösp Jónsdóttir, lögfræðingur í atvinnuvegaráðuneytinu
  • Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu
  • Hafsteinn S. Hafsteinsson, lögfræðingur í umhverfis-, orku – og loftlagsráðuneytinu,
  • Björn Ingi Brands Óskarsson, lögfræðingur í innviðaráðuneytinu
  • Magnea Magnúsdóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅