Arnar segir leikmenn hafa horfst í augu við sjálfa sig eftir agabrotið - „Tilbúnir að viðurkenna ýmislegt sem þeir voru ekki tilbúnir að viðurkenna áður“

Fréttir um agabrot landsliðsmanna íslenska karlalandsliðsins fóru sennilega ekki framhjá mörgum í síðasta mánuði. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari tjáði sig frekar um þessi mál í dag, þegar hann ræddi við fjölmiðla í tilefni að komandi leikjum gegn Búlgaríu og Lúxemborg. 

Nokkrir landsliðsmenn fóru á fyllerí á milli þriðja og fjórða leiks í síðasta landsleikjaverkefni. Arnar ákvað að refsa þeim ekki með því að senda þá heim, þó það hafi verið hans fyrsta hugsun þegar hann heyrði af málinu. Treystir hann því að nú hafi menn lært mikilvæga lexíu.

„Maður reynir að setja sig í sömu spor. Ég var kannski enginn engill sem leikmaður en ef ég hefði lent í einhverju svona myndi ég mæta auðmjúkur til leiks, sterkur, búinn að læra af þessu. Þú átt ekki að breyta þér í einhvern annan karakter heldur bara sýna það að liðið gengur framar öllu. Þú ert mættur hérna til að berjast fyrir okkur og þjóðina. Eina leiðin er að sýna það í verki,“ sagði Arnar.

„Það er svo mikið í húfi hjá þessum strákum. Og þeir eru kannski tilbúnir að viðurkenna ýmislegt sem þeir voru ekki tilbúnir að viðurkenna áður, gagnvart sjálfum sér. Það er oftast fyrsta skrefið í átt að strerkri vegferð. Ég hef því engar áhyggjur af því að það sem kom fyrir í síðasta glugga komi fyrir aftur.“

Ítarlegt viðtal við Arnar um þessi mál og komandi leiki er í spilaranum hér ofar. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅