Fyrirliði Íslands ekki með í stórleikjum
Íslenska U21 árs landslið karla í knattspyrnu mætir Grikklandi í tveimur umspilsleikjum um sæti á EM 2027 síðar í mánuðinum.
Lúðvík Gunnarsson og Ólafur Helgi Kristjánsson landsliðsþjálfarar hafa tilkynnt hópinn fyrir leikina.
Fyrri viðureignin fer fram á Þróttarvelli 12. nóvember klukkan 13 og seinni leikurinn í Aþenu 16. nóvember. Liðið sem vinnur einvígið fer á lokamót EM í Serbíu og Albaníu.
Fyrirliðinn Eggert Aron Guðmundsson og Kjartan Már Kjartansson missa af leikjunum vegna meiðsla.
Ágúst Orri Þorsteinsson og Logi Hrafn Róbertsson koma inn í hópinn. Ágúst gaf ekki kost á sér síðast en Logi var þá meiddur.
Landsliðshópur Íslands:
Markverðir:
Ásgeir Orri Magnússon – Keflavík
Halldór Snær Georgsson – KR
Lúkas J. Blöndal Petersson – Hoffenheim
Varnarmenn:
Amin Cosic – Viking FK
Ágúst Orri Þorsteinsson – Excelsior
Baldur Kári Helgason – FH
Benoný Breki Andrésson – Stockport
Daníel Freyr Kristjánsson – Lyngby
Daníel Tristan Guðjohnsen – Malmö
Davíð Helgi Aronsson – Lyngby
Freyr Sigurðsson – Fram
Galdur Guðmundsson – KR
Haukur Andri Haraldsson – ÍA
Helgi Fróði Ingason – Helmond Sport
Hilmir Rafn Mikaelsson – Sigma Olomouc
Hlynur Freyr Karlsson – Breiðablik
Hlynur Þórhallsson – Þróttur R.
Júlíus Mar Júlíusson – Kristiansund
Logi Hrafn Róbertsson – Värnamo
Nóel Atli Arnórsson – Aalborg
Stígur Diljan Þórðarson – Víkingur
Tómas Orri Róbertsson – FH
Viktor Bjarki Daðason – FC Köbenhavn
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗