Andlitsslæður eiga ekkert erindi á Íslandi
Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, segir mikilvægt að banna fólki að hylja andlit sitt á almannafæri áður en slíkt verður útbreitt hér á landi.
Karl Gauti mælti í dag fyrir þingsályktunartillögu þess efnis að dómsmálaráðherra verði falið að semja frumvarp um bann við því að hylja andlit í opinberu rými.
Hann segir bannið meðal annars eiga að sporna við kúgun kvenna og auðvelda lögreglu að bera kennsl á þá sem fremja skemmdarverk eða beita ofbeldi við mótmæli.
Tillagan var fyrst lögð fram í vor en náði ekki fram að ganga.
Vill grípa til aðgerða áður en vandinn kemur upp
Í framsöguræðu sinni sagði Karl Gauti mikilvægt að Íslendingar lærðu af reynslu annarra Evrópuríkja þar sem sambærileg bönn hafa verið innleidd, meðal annars í Frakklandi, Danmörku og Belgíu.
Hann sagði að þótt andlitshyljur væru ekki algeng sjón hér á landi væri mikilvægt að bregðast við áður en þær yrðu útbreiddar.
„Menn gætu sagt að þeir yrðu ekki varir við það að fólk fari að hylja andlit sitt hér á Íslandi, en einmitt þess vegna tel ég mikilvægt að við göngum í þetta mál núna,“ sagði hann.
Með því mætti koma í veg fyrir að hér skapaðist sambærilegur vandi og í öðrum Evrópuríkjum. Hann sagði rétt að líta á lagasetninguna sem fyrirbyggjandi aðgerð.
Segir andlitsslæður tákn kvennakúgunar
Í ræðu sinni lagði Karl Gauti sérstaka áherslu á að andlitsslæður kvenna væru víða táknmynd kúgunar.
„Slæður eða önnur klæði sem hylja andlit, sérstaklega kvenna, eru víða um heim skýrar táknmyndir um kvennakúgun,“ sagði hann og bætti við að slíkar táknmyndir ættu ekki heima í íslensku samfélagi.
Hann sagði Íslendinga hafa náð miklum árangri í jafnréttisbaráttu og að ekki kæmi til álita að samþykkja venjur frá samfélögum þar sem staða kvenna einkenndist af kúgun og kvenfyrirlitningu.
„Við megum ekki gefa afslátt í þessum efnum, engan afslátt.“
Karl Gauti hafnaði jafnframt þeim sjónarmiðum að bann við andlitsslæðum fæli í sér óeðlilega skerðingu á trúfrelsi. Hann sagði slæður sem hylja andlit kvenna ekki eiga rætur í trúarlegum forsendum heldur endurspegla aldagamlar hugmyndir um kúgun kvenna.
Hann tók þó fram að við útfærslu bannsins þyrfti að taka fullt tillit til stöðu þeirra kvenna sem það hefði áhrif á.
Vill auðvelda lögreglu að bera kennsl á mótmælendur
Þingmaðurinn sagði tillöguna einnig beinast að því að auðvelda lögreglu að bera kennsl á einstaklinga sem hylja andlit sitt við mótmæli.
Hann vísaði til þess að víða í Evrópu hefðu komið upp vandamál þar sem mótmælendur hylja andlit sín til að torvelda lögreglu að bera kennsl á þá sem standa að skemmdarverkum eða ofbeldi.
Með banninu fengju yfirvöld aukin úrræði til að stemma stigu við slíkri háttsemi.
Karl Gauti sagði eðlilegt að við útfærslu laganna yrði miðað við að nægilega stór hluti andlits væri sýnilegur til að unnt væri að bera kennsl á viðkomandi. Ekki væri nægilegt að aðeins sæjust augun.
Gert ráð fyrir undantekningum
Samkvæmt tillögunni yrði bannið almennt og tæki til allra, óháð trúarbrögðum eða menningarlegum bakgrunni. Gert yrði ráð fyrir undantekningum, meðal annars vegna heilsufars, vinnuverndar, veðurfars, íþróttaiðkunar og trúarathafna innan húsnæðis trúfélaga.
Karl Gauti lagði áherslu á að framkvæmd laganna yrði hófleg og byggðist fyrst og fremst á fræðslu, viðvörunum og samtali fremur en þungum refsingum.
Auk hans standa sex þingmenn Miðflokksins að tillögunni: Bergþór Ólafsson, Ingibjörg Davíðsdóttir, Anna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Snorri Másson og Þorgrímur Sigmundsson.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗