Játaði að hafa brotið rúður í nærri 30 bílum á Nesinu

Nærri 30 bílar voru skemmdir.

Nærri 30 bílar voru skemmdir. Ljósmynd/Aðsend

Karlmaður um þrítugt hefur játað að hafa brotið rúður í nærri þrjátíu bifreiðum á Seltjarnarnesi aðfaranótt mánudagsins 2. nóvember.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn málsins, að því er fram kemur í tilkynningu hennar.

Skemmdarverkin voru unnin á bifreiðum sem stóðu við Nesveg, Kirkjubraut og Austurströnd. Bíleigendur uppgötvuðu skemmdirnar á mánudagsmorgun en ýmist hafði ein eða tvær rúður verið brotnar í bifreiðunum.

Tjónið talið hlaupa á milljónum

Eins og mbl.is greindi frá á mánudag er talið að tjónið vegna skemmdarverkanna hlaupi á milljónum króna.

Lögregla óskaði í kjölfar skemmdarverkanna eftir aðstoð almennings við rannsókn málsins og hvatti meðal annars íbúa til að skoða upptökur úr eftirlitsmyndavélum og myndavélum í bifreiðum.

Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við mbl.is síðdegis á mánudag að fjölmargar ábendingar hefðu borist og að rannsókn málsins miðaði vel áfram.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅