Ekki hlaupið að því að færa veginn

Skemmdir á veginum eftir grjóthrunið.

Skemmdir á veginum eftir grjóthrunið. Ljósmynd/Aðsend

Vegagerðin mun loka gatinu sem myndaðist í grjótvörninni við Holtsnúp undir Eyjafjöllum eftir að grjóthrun varð þar fyrir hádegi í dag. Þá verða möguleikar á frekari aðgerðum skoðaðir, en ekki stendur til eins og er að færa veginn eins og íbúar á svæðinu hafa talað fyrir.

„Við eigum svo sem til einhverjar hugmyndir um það en það er ekkert alveg hlaupið að því,“ segir Svanur Bjarnason, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á suðursvæði, spurður hvort færsla á veginum komi til greina.

„Svæðið er mjög blautt þarna fyrir neðan og svo yrði það færsla á svolítið löngum kafla, svo að þetta gengi upp. Þannig að það er svolítið mikið meiri pakki heldur en þessi veggur sem við fórum í. Við hefðum náttúrulega gert það strax ef það hefði verið auðveld lausn.“

Grjótið sem komst í gegn hafi verið óvenju stórt miðað við það sem hefur verið, „þó að örugglega hafi komið einhvern tímann jafn stór eða jafnvel stærri“.

Hér má sjá hvernig tíu tonna hnullungurinn braut leið sína í gegnum grjótvarnirnar. Ljósmynd/Aðsend

„Það mun taka svolítinn tíma“

„Nú náttúrulega byrjum við á því að loka þessu gati sem varð til og svo þarf að leggjast yfir það með okkar sérfræðingum hvaða lausnir eru í boði þarna. Það þarf að skoða þessar aðstæður betur og sjálfsagt að skoða betur möguleika á færslu og svoleiðis en eins og ég segi, það mun taka svolítinn tíma og er ekki alveg hlaupið í það,“ segir Svanur enn fremur.

Spurður hvað eigi að gera í millitíðinni, þangað til endanleg ákvörðun verður tekin, segir hann ekki standa til að stækka vegginn heldur einungis að laga gatið.

„Hann náttúrulega tekur alla steina sem eru af þessari stærðargráðu sem hafa verið að koma svona yfirleitt. Þetta er einhver undantekning, en þær verða vissulega,“ segir hann.

„Við létum herma þetta áður en við settum þetta upp, reikna út fallhraða og svoleiðis, og þá var verið að miða við steina sem voru þrjú til fimm tonn, eitthvað svoleiðis, sem var kannski svipað og einmitt steinninn sem olli þessu hræðilega slysi sem varð í fyrra. Veggurinn átti sem sagt að grípa þá flesta. En svo gerist þetta.“

„Þetta gerðist náttúrulega bara rétt fyrir hádegið og við erum að fara yfir stöðuna. Það er voðalega erfitt að segja til.“

Veggurinn greip megnið af grjóthruninu.

Veggurinn greip megnið af grjóthruninu. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅