Arnar segir að Aron Einar sé pirraður - „Mér fannst það mjög leiðinlegt“

Aron Einar Gunnarsson getur jafnað leikjamet Birkis Bjarnasonar hjá íslenska landsliðinu ef hann spilar báða leikina í Þjóðadeildinni, gegn Búlgaríu og Lúxemborg, síðar í þessum mánuði. Hann mun svo leggja landsliðsskóna á hilluna.

Aron spilaði aðeins einn leik í síðasta glugga og getur því ekki slegið metið. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari segist hafa mikinn skilning á því ef Aron er pirraður á því að fá ekki tækifæri til að bæta metið.

„Ég held að hann sé bara ekki sáttur við það, ekki væri ég sáttur við það. Mér fannst það mjög leiðinlegt (að geta ekki gefið honum annan leik) en við erum bara ekki að gefa mínútur í þessum bransa.

Þó hann sé ekki sáttur held ég að hann skilji þetta. Nú horfir hann væntanlega til þess að jafna metið og þá þarf hann að mæta gíraður í verkefnið. Hann hefur gefið mikið af sér, Orri hefur talað um hvað hann er flott fyrirmynd fyrir hann, það er eins og hann sé að afhenda honum lyklana,“ sagði Arnar á blaðamannafundi í dag.

Einu mínútur Arons í síðasta landsleikjaverkefni, sem innihélt fjóra leiki, komu í fyrri hálfleik gegn Búlgaríu á heimavelli. Hann var svo tekinn af velli í hálfleik.

„Hann var mjög flottur gegn Búlgaríu en hinir leikirnir voru bara þess eðlis að það vara bara ekki tilfinning fyrir að gefa honum þessar mínútur. En vonandi gengur rómantíkin upp og hann fær mínútur í báðum leikjum. Ef ekki, shit happens.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅