Ný kynslóð Mercedes-Benz fær góðar viðtökur

Afmælisárið einkennist af umfangsmikilli endurnýjun á vörulínu framleiðandans, sem er sögð ein sú mesta í sögu Mercedes-Benz. Ljósmynd/Aðsend

Mercedes-Benz hefur átt sterkt ár á Íslandi og hefur ný kynslóð merkisins fengið afar góðar móttökur. Árið markar jafnframt 140 ára afmæli Mercedes-Benz, sem fagnað er með einni umfangsmestu endurnýjun vörulínunnar í sögu merkisins.

Mercedes-Benz er með 5,37% markaðshlutdeild í sölu nýrra fólksbíla á almennum markaði hér á landi það sem af er ári, samkvæmt upplýsingum frá bílaumboðinu Öskju, sem segir í tilkynningu að Mercedes-Benz sé leiðandi á íslenskum lúxusbílamarkaði.

Mikil endurnýjun stendur nú yfir á vörulínu Mercedes-Benz og eru fleiri nýjar gerðir væntanlegar á næstu mánuðum.

„Við erum mjög ánægð með viðtökurnar við nýju línunni. Það er mikil endurnýjun í gangi hjá Mercedes-Benz og greinilegt að nýju bílarnir njóta mikilla vinsælda hjá íslenskum kaupendum. Nýja línan er einfaldlega að hitta í mark,“ segir Ágúst Hallvarðsson, sölustjóri Mercedes-Benz á Íslandi, í tilkynningunni.

GLC fengið góðar viðtökur

Nýr og alrafmagnaður Mercedes-Benz GLC er sagður hafa fengið sérstaklega góðar viðtökur hér á landi. Forsala á bílnum hófst í febrúar og var hann frumsýndur hér á landi í júní.

Að sögn Öskju hefur GLC verið ein af lykilgerðum Mercedes-Benz á árinu og endurspeglar þá endurnýjun sem nú á sér stað hjá framleiðandanum.

Bíllinn er búinn nýju MB.OS-stýrikerfi Mercedes-Benz, sem tengir saman ýmis stafræn kerfi bílsins. Þá er aukin drægni og ný tækni meðal helstu áhersluþátta.

Fleiri nýjar gerðir væntanlegar

Forsala er þegar hafin á nýjum, alrafmögnuðum Mercedes-Benz GLA, sem verður frumsýndur hér á landi síðar á árinu. Þá eru einnig nýjar gerðir af GLE og C-Class væntanlegar til landsins.

Mercedes-Benz fagnar jafnframt 140 ára afmæli á þessu ári, en árið 1886 sótti Carl Benz um einkaleyfi á fyrstu bensínknúnu bifreið sinni.

Afmælisárið einkennist af umfangsmikilli endurnýjun á vörulínu framleiðandans, sem er sögð ein sú mesta í sögu Mercedes-Benz.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅