Beint: Breytingar á réttindum fatlaðra ungmenna
Innlent | mbl | 4.11.2026 | 14:50
ÖBÍ réttindasamtök og sérnámsbraut Framhaldsskólans í Mosfellsbæ bjóða til málþings í hátíðarsal skólans í dag um breytingar sem verða á réttindum fatlaðra ungmenna þegar þau ná 18 ára aldri, bæði innan almannatrygginga- og skólakerfisins.
Á meðal dagskrárliða eru reynslusögur nemenda, þar sem hægt verður að fá innsýn í hvernig kerfin virka í raun og veru.
Þátttakendur á málþinginu:
- Arndís Guðmundsdóttir, deildarstjóri sérnámsbrautar Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
- Reynslusögur nemenda
- Hrönn Stefánsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur og formaður Gigtarfélags Íslands.
- Dr. Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, prófessor á menntavísindasviði HÍ
- Ellen Óskarsdóttir, barnahjúkrunarfræðingur og móðir langveikrar stúlku
- Björgvin Már Karlsson, nemandi í Hringsjá
- Svanbjörg Sigmarsdóttir, sviðsstjóri endurhæfingarsviðs TR
Hægt verður að fylgjast með málþinginu í beinu streymi hér að neðan:
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗