Fótboltasysturnar áfram í Vesturbænum

Katla og Kara Guðmundsdætur.

Katla og Kara Guðmundsdætur. Ljósmynd/KR

Knattspyrnukonurnar Katla og Kara Guðmundsdætur hafa báðar framlengt samninga sína við uppeldisfélag sitt KR.

Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Katla, sem er 18 ára gömul, skrifaði undir tveggja ára samning sem gildir út keppnistímabilið 2018.

Kara, sem er einungis 16 ára gömul, skrifaði undir þriggja ára samning sem gildir út keppnistímabilið 2029.

Þær voru báðar í lykilhlutverkum hjá KR í sumar þegar liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni en Kara skoraði 12 mörk í 18 leikjum í 1. deildinni á meðan Katla skoraði tíu mörk í 18 leikjum.

Þá var Kara útnefnd efnilegasti leikmaður deildarinnar en þær eru dætur Guðmundar Benediktssonar og Kristbjargar Ingadóttur. Albert bróðir þeirra er samningsbundinn Lazio í ítölsku A-deildinni.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅