Forstjóri og stjórnarformaður ÍAV láta af störfum

Þóroddur Ottesen Arnarson (tv.) og Sigurður Ragnarsson (th.) leggja brátt niður verkfærin. Samsett mynd/Stólpi/Aðsend

Þóroddur Ottesen Arnarson forstjóri og Sigurður Ragnarsson stjórnarformaður Íslenskra aðalverktaka munu brátt láta af störfum. 

Þetta staðfestir Þóroddur í samtali við mbl.is.

Hann lætur af störfum þann 15. janúar og mun Sigurður starfa áfram hið minnsta fram að áramótum. 

Vísir greinir frá því að Daniel Grad, forstjóri Marti AS í Noregi, muni tímabundið taka við sem forstjóri, en til standi að ráða annan forstjóra. Grad mun jafnframt taka við sem stjórnarformaður ÍAV, en Marti contractors Ltd, sem staðsett er í Sviss, er móðurfélag ÍAV og kemur Grad frá systurfélagi ÍAV í Noregi.

Þóroddur á ný mið

Þóroddur hefur verið ráðinn forstjóri Stólpa, dótturfélags Styrkás hf. Kemur þetta fram í tilkynningu frá félaginu.

Stólpi er þjónustufyrirtæki á sviði eignaumsýslu og leigustarfsemi og býður húseiningar, íbúðareiningar, gáma og geymslulausnir til sölu og leigu. Ásamt því rekur það smiðjustarfsemi þar sem félagið annast meðal annars gáma-, kæli- og vagnaviðgerðaþjónustu og trésmíðaþjónustu.

„Stólpi hefur sterka stöðu á sínum markaði og öflugt starfsfólk. Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu félagsins og sé mikil sóknarfæri bæði á sviði húseininga og í annarri starfsemi félagsins,“ er haft eftir Þóroddi í tilkynningunni.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅