Stutt í tárin þegar salan nálgaðist
Það hefur verið stutt í tárin hjá Gísla Sigurbergssyni, framkvæmdastjóra og einum eigenda Fjarðarkaupa, í söluferli fjölskyldufyrirtækisins. Hann lýsir bæði gleði og sorg vegna tímamótanna í viðtali í Dagmálum.
„Fólk hefur óskað mér til hamingju,“ segir Gísli. „Auðvitað er þetta hamingja en þetta er líka sorg.“
Þegar útlit var fyrir að salan væri að ganga í gegn hafi tilfinningarnar gert vart við sig. Við undirritunina hafi hann síðan fundið fyrir fiðringi í maganum þegar það rann upp fyrir honum að breytingarnar nálguðust.
Systkinin hittust eftir undirritunina og grínuðust með að samveran væri eins og erfidrykkja, líkt og þau væru að syrgja einhvern.
Gísli segist enn ekki finna fyrir söknuði enn en hann eigi von á honum. Jafnframt sé hann spenntur fyrir því sem taki við.
Hann ræðir tilfinningarnar sem fylgja sölunni í meðfylgjandi myndskeiði.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗