Súkkulaðirisinn vill snjóboltana fyrir sig

Deilt er um snjóbolta í súkkulaðiheiminum fyrir jólin. Eigandi Cadbury gerir tilkall til vörumerkjanna „Snowball“ og „Snowballs“ en Moo Free hafnar því að súkkulaðifyrirtæki geti átt svo almennt orð. Samsett mynd/Dan Page/Unsplash

Eigandi Cadbury hefur krafið lítinn breskan súkkulaðiframleiðanda um að hætta að nota orðið „snjóbolti“ um jólavöru sína. Fjölskyldufyrirtækið Moo Free hafnar því að sýnt hafi verið fram á brot og spyr hvort svo almennt orð geti verið einkaeign eins framleiðanda.

The Independent greinir frá deilunni, sem snýst um vöruna White Choccy Snowballs. Um er að ræða glútenlausa hrísgrjónabolta með kexbragði, hjúpaða mjólkurlausu hvítu súkkulaði.

Mondelēz International, sem á bæði Cadbury og Toblerone, hefur sent Moo Free lögfræðibréf og sakar fyrirtækið um vörumerkjabrot. Samkvæmt fréttinni voru orðin „Snowball“ og „Snowballs“ skráð sem vörumerki fyrir súkkulaðisælgæti árið 2001.

Krafa um að taka vöruna úr sölu

Moo Free er fjölskyldufyrirtæki í Devon á Englandi. Að sögn fyrirtækisins höfðu snjóboltarnir verið í sölu í um tvö ár þegar Mondelēz krafðist þess að þeir yrðu þegar teknir úr sölu í aðdraganda jóla.

Mike Jessop, sem stofnaði Moo Free ásamt öðrum árið 2010, segir vöruna fyrst hafa verið selda á netinu. Síðar hafi Waitrose tekið hana í sölu og fleiri verslanir fylgt á eftir.

Í samtali við The Guardian, sem The Independent vísar til, sagðist Jessop aldrei hafa heyrt um snjóbolta Cadbury. Hann væri sjálfur með laktósaóþol og gæti því ekki smakkað þá.

Hann dró jafnframt í efa að hægt væri að gera tilkall til svo almenns orðs sem „snjóbolti“.

„Þetta er snjóbolti. Það er ekki eins og við séum að búa til Freddo,“ sagði hann og vísaði þar til frosklaga súkkulaðisins frá Cadbury.

Mondelēz segist vilja samkomulag

Mondelēz segir ekkert dómsmál hafa verið höfðað vegna snjóboltanna. Fyrirtækið hafi haft samband við Moo Free til að vekja athygli á vörumerki sínu og sé reiðubúið að leita sátta.

Í yfirlýsingu til The Independent sagði talsmaður þess snjóbolta Cadbury vera meðal vinsælustu jólavara fyrirtækisins.

Moo Free hefur hins vegar tilkynnt viðskiptavinum sínum að þótt fyrirtækið taki hugverkaréttindi alvarlega fallist það ekki á að sýnt hafi verið fram á brot.

Önnur deila um súkkulaði

Deilan kemur í kjölfar aðgerða Mondelēz gegn öðrum litlum framleiðanda jurtasúkkulaðis, Catherine’s Originals. Þar hefur fyrirtækið leitað til dómstóla í London vegna súkkulaðistykkisins O’bar, sem það telur brjóta gegn vörumerkjaréttindum tengdum Toblerone.

Catherine Dodd, stofnandi Catherine’s Originals, hefur hafnað ásökununum. Hún segir lögun súkkulaðistykkisins vísa til bókstafsins O í nafni fyrirtækisins og að engin viðskiptatengsl séu við Toblerone eða Mondelēz.

Moo Free hefur lýst yfir samstöðu með Catherine’s Originals. Fyrirtækið segist vonast til að lausn finnist á deilunum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅