Beint: Breytingar á réttindum fatlaðra ungmenna

Innlent | mbl | 4.11.2026 | 14:50

Málþingið hefst klukkan 15.

Málþingið hefst klukkan 15.

ÖBÍ réttindasamtök og sérnámsbraut Framhaldsskólans í Mosfellsbæ bjóða til málþings í hátíðarsal skólans í dag um breytingar sem verða á réttindum fatlaðra ungmenna þegar þau ná 18 ára aldri, bæði innan almannatrygginga- og skólakerfisins.

Á meðal dagskrárliða eru reynslusögur nemenda, þar sem hægt verður að fá innsýn í hvernig kerfin virka í raun og veru.

Þátttakendur á málþinginu:

  • Arndís Guðmundsdóttir, deildarstjóri sérnámsbrautar Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
  • Reynslusögur nemenda
  • Hrönn Stefánsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur og formaður Gigtarfélags Íslands.
  • Dr. Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, prófessor á menntavísindasviði HÍ
  • Ellen Óskarsdóttir, barnahjúkrunarfræðingur og móðir langveikrar stúlku
  • Björgvin Már Karlsson, nemandi í Hringsjá
  • Svanbjörg Sigmarsdóttir, sviðsstjóri endurhæfingarsviðs TR

Hægt verður að fylgjast með málþinginu í beinu streymi hér að neðan:

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅