Karen segir málefni Palestínu ekki lengur þvælast fyrir frambjóðendum
Karen Kjartansdóttir almannatengill segir að niðurstöðurnar í kosningunum í Bandaríkjunum í nótt sýni að hægt sé að sigra kosningar þrátt fyrir múslimahatur og að frambjóðendur geti talað fyrir réttindum Palestínumanna. Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson segir að íslenskir stjórnmálamenn geti lært af þessu og látið af múslimahatri. Niðurstöðurnar eru mikið högg fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta sem viðurkennir að stríðið hans við Íran hafi spilað stórt hlutverk í kosningunum.
„Óvinsældir Trumps og hækkandi framfærslukostnaður skýra margt um sigur demókrata. En hvers vegna komust einmitt þeir frambjóðendur áfram sem öflug öfl innan flokksins vildu stöðva og milljónum dollara var varið í að fella? Palestínumálið er hluti af svarinu,“ segir Karen í ítarlegri greiningu á úrslitunum Vestanhafs þar sem Demókratar unnu stórsigur á Repúblikönum í bæði fulltrúadeild þingsins og öldungadeild.
„Baráttan hefur hjálpað nýju fólki að byggja upp stuðning og gefið kjósendum ástæðu til að treysta því að það láti ekki undan þrýstingi. Í tilfelli múslimsku frambjóðendanna Zohrans Mamdanis og Abduls El-Sayeds reyndi líka á hvort hægt væri að gera trú þeirra og uppruna tortryggileg í augum kjósenda,“ segir Karen.
„Afstaðan til Palestínu tengist enda stærri spurningum. Gilda mannréttindi fyrir alla? Hverju eiga bandarískir skattpeningar að þjóna? Og hver ræður þegar vilji kjósenda og fjársterkra stuðningsaðila fer ekki saman?“
Nefnir hún að Zohran Mamdani, sem tók við sem borgarstjóri New York í byrjun árs, á mikilvægar rætur í Palestínubaráttunni, hann hafi meðal annars tekið þátt í stofnun stúdentasamtaka um réttindi Palestínumanna.
„Sú barátta hjálpaði honum síðar áfram. Í New Yorker lýsti Ana María Archila, þá einn leiðtoga Working Families Party í New York, því hvernig vaxandi hreyfing gegn stríðinu og staða Mamdanis innan hennar hefði orðið ástæða til að fá hann til samstarfs. Þegar Mamdani studdi síðan Brad Lander, Claire Valdez og Darializa Avila Chevalier í forkosningum til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings unnu þau öll. Avila Chevalier hafði sjálf tekið þátt í að skipuleggja mótmælabúðirnar við Columbia-háskóla og gegnt forystuhlutverki í kosningastarfi Mamdanis.“
Adam Hamawy hlaut í nótt um 70% stuðning sem þingmaður New Jersey.
„Hamawy, bandarískur múslimi og fyrrverandi skurðlæknir í Bandaríkjaher, fór tvisvar til Gaza sem sjálfboðaliði og sinnti særðum Palestínumönnum. Hann varð þar vitni að því sem hann hefur sjálfur lýst sem þjóðarmorði. Þegar hann sneri heim fór hann til Washington til að hvetja stjórnmálamenn til að bregðast við. Aðgerðaleysið sem mætti honum varð honum hvati til að bjóða sig sjálfur fram,“ segir Karen.
„Þarna skiptir reynslan úr mótmælunum máli. Fólk lærir að skipuleggja starf, ná til annarra og halda áfram þrátt fyrir mótstöðu. Það nýtist líka þegar gengið er í hús og kjósendur hvattir á kjörstað.“
Abdul El-Sayed öldungadeildarþingmaður. Mynd/Getty
Í Michigan var Abdul El-Sayed kjörinn í öldungadeildina. Kosningabarátta hans vakti mikla athygli en hann sigraði þingkonuna Haley Stevens í forvali Demókrataflokksins, þegar nær dró kosningum lýsti Stevens svo yfir stuðningi við fulltrúa Repúblikana.
Karen bendir á að í forkosningunum hafi AIPAC, bandarísk hagsmunasamtök sem beita sér fyrir stuðningi við Ísrael, og tengdir hópar safnað yfir 30 milljónum dollara til stuðnings við Stevens.
„El-Sayed gerði afskiptin sjálf að kosningamáli og tengdi þau við gagnrýni sína á áhrif peninga í stjórnmálum. Hann vann forkosningarnar naumlega og sigraði síðan repúblikanann Mike Rogers í almennu kosningunum. Barátta hans sameinaði heilbrigðismál, andstöðu við áhrif fjársterkra hagsmunaaðila og gagnrýni á stuðning Bandaríkjanna við Ísrael,“ segir Karen.
„Sigurinn segir ekki einn og sér hvers vegna kjósendur völdu hann, en hann veikir þá röksemd að frambjóðandi með þessa afstöðu geti ekki unnið utan öruggra vinstrivíga. Afstaðan nýtur líka víðtæks stuðnings. Í könnun Chicago Council í júlí vildu 72 prósent demókrata draga úr eða hætta hernaðaraðstoð til Ísraels. Ekki setja allir þessir kjósendur Palestínu efst á forgangslistann, en krafan um breytingar er langt frá því að vera jaðarskoðun.“
Bar sig saman við kaþólikkann John F. Kennedy
Í kosningabaráttunni, bæði í fyrra þegar Mamdani var kjörinn borgarstjóri og nú í haust þegar El-Sayed var kjörinn í öldungadeildina, hafi þeir báðir mætt múslimahatri þar sem trú þeirra hafi verið tengd við hryðjuverk og hollusta þeirra við Bandaríkin dregin í efa. Það kom ekki í veg fyrir að El-Sayed gagnrýndi harðlega stríðsrekstur Ísraela.
„Eftir sigur Mamdanis í forkosningunum 2025 miðlaði Donald Trump yngri færslu sem líkti því að kjósa hann við að kjósa árásirnar 11. september. El-Sayed var aftur og aftur krafinn um að sanna hollustu sína við landið sem hann fæddist og ólst upp í. Hann bar sjálfur þessa tortryggni saman við það sem John F. Kennedy mætti vegna kaþólskrar trúar sinnar. Kjósendur áttu að efast um El-Sayed vegna trúar hans, sama hvað hann hafði fram að færa um heilbrigðisþjónustu eða framfærslukostnað,“ segir Karen.
„Sigrar þeirra sýna ekki að íslamófóbía sé áhrifalaus, en þeir sýna að hægt er að vinna þrátt fyrir hana og tala um leið skýrt fyrir réttindum Palestínumanna.“
Það kom mörgum á óvart að Trump skyldi á lokametrum kosninganna lýsa yfir að Bandaríkin muni hætta fjárhagslegum stuðningi við Ísrael. Mynd/Getty
Þá séu einnig merki þess að stuðningurinn við Ísrael sé að veikjast meðal Repúblikana. Í könnun frá því í vor var meira en helmingur kjósenda flokksins undir fimmtugu með neikvætt viðhorf til Ísraels, stuðningurinn var meiri meðal eldri kjósenda.
„Á kjördag sagðist Trump ætla að hætta nærri fjögurra milljarða dollara árlegri hernaðaraðstoð til Ísraels og nefndi El-Sayed sérstaklega þegar hann ræddi pólitískan kostnað stuðningsins. Útfærslan var óljós og yfirlýsingin tryggir ekki að breytingin verði framkvæmd. En orð hans má skilja sem tilraun til að draga úr pólitískum skaða stuðningsins við Ísrael,“ segir Karen.
„Mamdani fékk bakland í Palestínubaráttunni. El-Sayed gerði peningana sem varið var gegn honum að kosningamáli. Báðir unnu þrátt fyrir tilraunir til að gera trú þeirra tortryggilega. Það er erfitt að telja atkvæðin sem afstaða þeirra til Palestínu skilaði, en hún var hluti af baráttunni sem kom þeim áfram.“
Sveinn Andri er meðal þeirra sem taka undir með Karen.
„Íslenskir stjórnmálamenn geta til dæmis dregið af þessum kosningum þann lærdóm að láta af múslimahatrinu og standa með réttlætinu,“ segir hann.
„Andstæðingar Abduls ytra misfóru með nafnið hans, kölluðu hann jihadista og marxista, sem þyrfti að fara í gegnum vopnaskanna í þinghúsinu og AIPAC-sjóðir Ísraelsmanna dældu peningum í andstæðinga hans, en allt kom fyrir ekki. Hér er á ferðinni maður grasrótarinnar, með hófsöm sjónarmið sem myndu sóma sér vel hjá frjálslyndum stjórnmálaöflum á Íslandi.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗