Langflestir vilja losna við Martínez

Lisandro Martínez hefur átt erfitt tímabil.

Lisandro Martínez hefur átt erfitt tímabil. AFP/Oli Scarff

Langflestir stuðningsmenn Manchester United vilja losna við argentínska miðvörðinn Lisandro Martínez samkvæmt skoðanakönnun Manchester Evening News.

Samkvæmt könnuninni vilja 85% stuðningsmanna að félagið selji leikmanninn, sem hefur átt erfitt tímabil til þessa.

Þá gagnrýndi hann stjórn félagsins í viðtali eftir tap gegn Atlético Madrid á dögunum.

Martínez átti sérstaklega erfiðan dag gegn Chelsea síðastliðinn laugardag þegar hann átti sök í báðum mörkum Chelsea og fékk rautt spjald í 2:0-tapi.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅