Gera grín að áhyggjum hægrimanna í þórðargleði á samfélagsmiðlum - „Pankynhneigðar orgíur og sjaríalög“

Demókrataflokkurinn vann stórsigur í nótt þegar hann tryggði sér meirihluta í bæði fulltrúa- og öldungadeildinni. Þar með hefur verulega dregið úr valdi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta sem áður hafði meirihluta í báðum þingdeildum.

Bandarískir fjölmiðlar birta margir útgönguspá á kjördegi en um er að ræða könnun þar sem greina má kjósendahegðun og afstöðu til hinna ýmsu mála. Að þessu sinni má ráða af útgönguspám að réttara sé í raun að tala um ósigur Repúblikana. Kjósendur eru reiðir og ætla má að margir hafi kosið með veskinu enda sagðist mikill meirihluti hafa töluverðar áhyggjur af efnahagsmálum. Eins er mikil óánægja með stríðið í Íran og stuðning Bandaríkjanna við Ísrael. Einkum er það unga fólkið sem snerist gegn Repúblikönum sem hafi valdið þeim vonbrigðum.

Þórðargleðin á samfélagsmiðlum er mikil. Þar hafa þó nokkrar færslur birst þar sem gert er stólpagrín að gagnrýni Repúblikana í garð Demókrata sem hefur oft byggt á hræðsluáróðri og gífuryrðum um trans fólk, innflytjendur, múslima, þungunarrof, kynfræðslu og fleira. 

Stuðningmaður demókratans og ríkisstjórans í Kentucky, Andy Beshear, skrifar að Woke-ið sé komið til baka og birtir mynd þar sem hönd með hinseginfánanum beinir byssu að manni og segir: „Settu fornöfnin aftur í tölvupóstinn.“

UPDATE: Woke 2.0 is BACK https://t.co/MgM4RC1uXv

— BeshearStan (@BeshearStan) November 4, 2026

Aðgerðarsinninn Armand Domalewski skrifar í gríni:

„Skyldu kynleiðréttingaaðgerðirnar hefjast Í KVÖLD? Kjósendur Repúblikana, þið eigið allir að gefa ykkur sjálfviljugir fram á næsta þungunarrofsstað, annars kemur tvíkynhneigður sérsveitarmaður á heimili ykkar. Einhvern veginn hafa pankynhneigðar orgíur og sjaríalög samtímas tekið gildi frá og með þessari stundu.“

the mandatory sex change surgeries begin TONIGHT. all republican voters, please report to your local abortion clinic voluntarily or a bisexual MS-13 member will be sent to your home. somehow, pansexual orgies and shariah law are simultaneously in effect as of this moment

— Armand Domalewski (@ArmandDoma) November 4, 2026

 Grínistinn Gareth Reynolds segir: „Við ætlum að transa börnin ykkar svo harkalega“

We are gonna trans your kids so bad.

— Gareth Reynolds (@reynoldsgareth) November 4, 2026

Ein skrifar: „Hey krakkar, storkurinn var að mæta fyrir utan hjá mér með dekurpakka Bláu bylgjunnar en ég get ekki notað „keyptu 9 og fáðu eitt frítt þungunarrof“-miðann því ég er samkynhneigð. Endilega látið mig vita ef ykkur vantar auka“

You guys, a stork just arrived on my doorstep with a Texas blue wave care package, but I can’t use the buy 9, get 1 free abortion punch card since I’m gay. Let me know if any of y’all need extra!

— Hannah (@Spanish_Techno) November 4, 2026

„Dagskrá morgundagsins: Þungunarrof við sólarupprás, kynleiðrétting eftir morgunmat, innræting barna í hádeginu, kosningafundur til stuðnings sjaríalögum um kvöldið, fundur með bótasvikurum Minnesota fyrir háttinn.“

Tomorrows plans: abortion at sun rise Sex change after breakfast Indoctrinating children at noon Pro sharia law rally in the evening Meeting with Minnesotan scammers over zoom before bed

— JAXIE (@jaxajueny) November 4, 2026

„Kíkið í póstkassana á morgun til að sjá hvort gjafabréf fyrir fríu þungunarrofi og upplýsingabæklingum um sjaríalög og um hvernig þið skiptið um kyn séu komin“

Check your mail tomorrow to see if your free abortion vouchers and booklets on sharia law and transing your gender have arrived

— Josh McGill (@Joshmcgill7) November 4, 2026

 „Á ég að skipta fyrst um kyn eða fara í þungunarrof?? Ég er svo spenntur að ég veit ekki hvar ég á að byrja.“

Do I transition first or get an abortion? I’m so excited I don’t know where to start

— Anon Hater (@_AnonHater_) November 4, 2026

„Ég get ekki beðið eftir að fara í þungunarrof á sömu stofu og barnið mitt mun ganga undir hún/hennar kynleiðréttingu hjá grunnskólakennara sínum og dragdrottningu sem stundar upplestur á bókasöfnum og notar líka oft kvennasalerni áður en hún les Kóraninn fyrir sjaría-leshópinn sem er við hliðina á sómölsku daggæslunni“

I can't wait to get my abortion at the same clinic where my kid will get she/her sex change from her public school teachers and a drag queen library reader who also frequents the women's restroom before reading the Qu'ran to my Sharia Law study group next to the Somali Daycare.

— The Cult of Letang (@letangcult) November 4, 2026

Musk og laserar

Það voru þó ekki bara andstæðingar Repúblikana og Demókrata, en greinarmun þarf að gera á þessum tveimur hópum þar sem bara annar þeirra er flokksbundinn, sem ákváðu að slá á létta strengi í nótt. Auðkýfingurinn Elon Musk, sem hefur varið töluverðum peningum í kosningabaráttu Repúblikana, skrifaði nokkrar færslur þegar það var orðið ljóst í hvað stefndi. Þar gerði hann grín að lífseigum ásökunum um að hann hafi staðið fyrir kosningasvindli til að koma Donald Trump í Hvíta húsið. Eins vakti það athygli þegar ein barnsmóðir hans hélt því fram að Musk hefði sagt henni frá draumi um að koma laservopnum fyrir á tunglinu. Musk skrifar: „Ég held að kosningatruflandi geimlaserarnir mínir hafi ekki virkað í þetta skiptið“ og í annarri færslu segir hann: „Gagnaver á tunglinu eru farin að hljóma freistandi núna“

Guess my election-interfering space lasers didn’t work this time 🤷‍♂️

— Elon Musk (@elonmusk) November 4, 2026

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅