Stórhættulegi morðinginn loks handtekinn – Þessi mistök urðu honum að falli
Bandaríski morðinginn Jacob Morley, sem slapp úr fangelsi í Tennessee í síðustu viku og var talinn stórhættulegur, hefur verið handtekinn eftir níu daga á flótta. Flóttinn fékk þó óvæntan endi þegar hann ók út af veginum í Missouri-ríki og festi pallbílinn í drullu.
Morley, sem er 28 ára og afplánar lífstíðardóm fyrir hrottalegt morð á samstarfsmanni sínum, var handtekinn á þriðjudag skammt frá Kansas City.
AP-fréttaveitan greinir frá þessu.
Sjá einnig:Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
Festi bílinn
Lögregla hafði fengið upplýsingar um að Morley væri mögulega á ferð vestur eftir þjóðvegi í Missouri. Með aðstoð númeraplötulesara, óeinkennisklæddra lögreglumanna og lögregluþyrlu tókst að hafa uppi á honum.
Morley ók hvítum pallbíl sem hann er grunaður um að hafa stolið í Illinois. Í Carroll-sýslu í Missouri ók hann út af veginum og festi bílinn í drullu.
Þar með var flóttanum lokið. Lögreglumaður handtók Morley án átaka og að sögn lögreglu sýndi hann enga mótspyrnu. Við leit í bílnum fundust tveir rifflar og haglabyssa.
Faldi sig í veiðiskýli
Morley hafði áður hafst við í skýli fyrir veiðimenn í nágrenni Marion í Illinois. Þar er hann grunaður um að hafa stolið fatnaði, skotvopnum og pallbílnum sem hann ók þegar hann var handtekinn.
Lögregla fann handskrifaða afsökunarbeiðni í skýlinu og vísbendingar um að Morley hefði útbúið sér mat, meðal annars hvítlauksbrauð.
Talið er að hann hafi hafst þar við í nokkra daga áður en hann hélt flóttanum áfram.
Morley slapp úr Northwest Correctional Complex-fangelsinu í Tennessee þann 25. október með því að komast í gegnum öryggisgirðingu. Skömmu síðar stal hann öðrum pallbíl sem fannst yfirgefinn í Illinois.
Óttuðust að hann myndi drepa aftur
Morley var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt samstarfsmann sinn, Cody Birchfield, árið 2022.
Samkvæmt saksóknurum skaut Morley Birchfield aftan í höfuðið og faldi lík hans í málmkassa undir heimili sínu. Morley hélt því hins vegar fram að hann hefði drepið Cody í sjálfsvörn.
Flótti hans vakti mikinn óhug og lýsti vinkona Birchfield yfir ótta við að Morley kynni að myrða aftur.
„Hann hefur engu að tapa á þessum tímapunkti og einhver gæti orðið hans næsta fórnarlamb, bara til þess að hann geti haldið áfram flótta sínum,“ sagði hún í samtali við Fox News í síðustu viku.
Nú er umfangsmikilli leit lögreglu í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna lokið og Morley á leið aftur á bak við lás og slá.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗