Arnar: „Ef það er ekki eitthvað sem mönnum líkar vel við er eitthvað mikið að“

„Mér líst mjög vel á þetta. Þetta verða erfiðir leikir. Bæði lið eru ósátt við hvernig þessi deild er að þróast, sérstaklega Lúxemborg sennilega því þeir gerðu sér miklar vonir,“ segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fyrir komandi leiki Íslands við Búlgaríu ytra og Lúxemborg heima í C-deild Þjóðadeildarinnar. 

Ísland er með pálmann í höndunum á toppi riðilsins. Strákarnir okkar geta því tryggt sér toppsætið í riðlinum og flogið upp í B-deild með því að klára sitt.

„Þetta verður erfiður útileikur en það er eitthvað sem segir mér að við munum klára þetta úti í Búlgaríu. Svo fáum við partí á Laugardalsvelli 16. nóvember,“ segir Arnar. 

„Þetta er draumastaða íþróttamannsins. Þú ert kominn í stöðu þar sem örlögin eru í þínum höndum. Ef það er ekki eitthvað sem mönnum líkar vel við er eitthvað mikið að. En þú verður að loka, það erfiðasta er að fara yfir hjallann.“

Ítarlegt viðtal við Arnar er í spilaranum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅