Staða Carricks lítið breytt
Forráðamenn Manchester United hyggjast enn endurmeta stöðu knattspyrnustjórans Michaels Carricks í landsleikjahléinu þrátt fyrir 3:2-endurkomusigur á Roma í Meistaradeildinni í gær, samkvæmt The Athletic.
Forráðamenn félagsins komust að samkomulagi í síðustu viku um að Carrick myndi stýra liðinu gegn Roma og í leiknum gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag áður en framtíð hans yrði endurskoðuð.
Ekki er búist við að sigurinn breyti þeirri áætlun. United batt enda á níu leikja hrinu án sigurs gegn Roma.
Landsleikjahléið myndi gefa mögulegum arftaka tíma til að koma sér fyrir áður en tímabilið hefst á ný.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗