Arnari heitt í hamsi: „Andskotinn hafi það!“

Arnar á blaðamannafundinum í dag.

Arnar á blaðamannafundinum í dag. mbl.is/Karítas

„Ég er ekki búinn að herða neinar reglur en það er aðallega búið að gera upp ákveðið mál sem kom upp í síðasta glugga,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í dag.

Arnar tilkynnti leikmannahóp sinn fyrir komandi verkefni gegn Búlgaríu og Lúxemborg í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í dag en um er að ræða lokaleiki íslenska liðsins í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar.

Í síðasta landsleikjaglugga í september gerðu nokkrir leikmenn liðsins sig seka um agabrot og var Arnar meðal annars spurður að því á fundinum í dag hvort hann myndi herða agareglur sínar fyrir komandi landsleiki.

Ætlar ekki að hengja upp reglulista

„Ég sé ekki ástæðu til þess að hengja upp einhvern reglulista á vegg. Andskotinn hafi það! Ef menn geta ekki hagað sér eftir allt sem á undan fer gengið, þá er eitthvað að og engar reglur munu bjarga því,“ sagði Arnar.

„Ég minni strákana á það hvaða ábyrgð við höfum frekar en að setja upp einhverjar reglur. Það fylgir því líka ákveðinn veikleiki að gera það. Við vitum til hvers við erum hérna og til hvers er ætlast af okkur, sem atvinnumenn og persónur. Ég veit að þetta mál er að baki og það var tæklað vel af leikmönnum, þjálfarateyminu og stjórn KSÍ.

Málið er samt ekki gleymt. Ég skil áhyggjur stuðningsmanna og annarra en fullvissa fólk um að þetta muni ekki koma fyrir aftur á minni vakt,“ bætti Arnar meðal annars við.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅