Vilja fæla áhugasöm félög frá með því að gefa unga manninum launahækkun
Chelsea ætlar að bjóða Estevao, einum efnilegasta leikmanni félagsins, nýjan samning eftir að Barcelona og Manchester United sýndu honum áhuga.
Samkvæmt spænska miðlinum AS hefur Chelsea engan áhuga á að selja þennan 19 ára gamla Brasilíumann og vill þess í stað endursemja við hann og gefa honum launahækkun.
Estevao hefur átt fremur erfitt uppdráttar undir stjórn Xabi Alonso á tímabilinu og fengið fá tækifæri. Hann heillaði hins vegar í 2-0 sigri á United um síðustu helgi.
Chelsea sér fyrir sér að Estevao verði í stóru hlutverki í framtíðinni og vill alls ekki selja hann. Núgildandi samningur rennur ekki út fyrr en 2033 en nýi samningurinn myndi aðallega snúast um launahækkun.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗