Jón Gnarr með ábendingu til verðandi foreldra – „Eins og við værum að reka mötuneytisþjónustu“
Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, segir að fólk geri sér oft ekki grein fyrir þeim gríðarlega kostnaði sem fylgir því að eignast börn. Útgjöldin geti hlaupið á milljónum króna á tiltölulega skömmum tíma og því sé mikilvægt að verðandi foreldrar séu vel undirbúnir.
Jón fjallar um þetta á gamansaman hátt í pistli í Morgunblaðinu í dag þar sem hann fer yfir ýmis útgjöld sem fylgja barnauppeldi, allt frá bleium og barnavögnum til dýrra merkjafata, íþróttaiðkunar og utanlandsferða.
Hann segir að margir átti sig ekki á því hversu kostnaðarsamt það geti verið að ala upp börn. Ekki sé nóg að fjárfesta í barnavögnum, bílstólum og öðrum nauðsynjum fyrstu árin, því útgjöldin haldi áfram að aukast eftir því sem börnin eldast.
Afmælisveislur séu til að mynda gjarnan tvær eða þrjár á ári fyrir hvert barn, auk þess sem stærri fjölskyldur þurfi rúmbetri bíla og húsnæði. Þá vilji börnin gjarnan ferðast til útlanda og helst á sólríka staði.
„Þetta er kostnaður sem getur hlaupið á nokkur hundruð milljónum yfir 5–10 ára tímabil,“ skrifar Jón, en hann leggur ekki fram sérstaka sundurliðun á þeirri fjárhæð.
Töpuð barátta um körfuboltaskó
Jón segir útgjöldin ekki minnka þegar börnin eldast. Þvert á móti taki þá við nýjar kröfur, meðal annars um dýran merkjafatnað sem börnin vaxi síðan hratt upp úr.
Hann rifjar upp þegar yngsta son hans langaði óskaplega mikið í ákveðna tegund af Air Jordan-körfuboltaskóm. Jóni blöskraði verðið og ákvað að leita að ódýrari lausn.
Hann fann skó sem líktust þeim sem sonurinn vildi, nema þeir hétu ekki Jordan Air heldur „GordonEr“. Sonurinn hafði hins vegar engan áhuga á eftirlíkingunni og harðneitaði meira að segja að fara og máta skóna.
„Þetta var töpuð barátta frá upphafi og þegar mamma hans var líka komin með honum í lið þá fór ég og keypti skóna. Og hann var vaxinn upp úr þeim mánuði síðar.“
Jón bendir einnig á að íþróttaiðkun barna geti reynst foreldrum dýrkeypt. Æfingagjöld, keppnisferðir og sífelld endurnýjun á íþróttafatnaði og búnaði geti fljótt orðið að stórum útgjaldalið í heimilisbókhaldinu.
Eins og að reka mötuneyti
Þegar börnin komast á unglingsárin taki síðan við nýr kafli í rekstri heimilisins. Jón segist á tímabili hafa verið með fjóra unglinga á heimilinu og þá hafi matarinnkaupin orðið að verulegri áskorun.
Drykkjarföng hafi horfið úr ísskápnum nánast um leið og þau voru keypt og maturinn sömuleiðis.
„Unglingar, ekki síst strákar, eru dýrir á fóðrum. Okkur hjónunum leið á tímabili, sem teygði sig yfir nokkur ár, eins og við værum að reka mötuneytisþjónustu.“
Jón segir að með skrifunum vilji hann fyrst og fremst vekja athygli á því að barneignir krefjist skipulags og fjárhagslegs undirbúnings. Kostnaðurinn ætti ekki að koma foreldrum í opna skjöldu.
Hann tekur þó skýrt fram að tilgangurinn sé alls ekki að letja fólk til þess að eignast börn.
„Ég vil alls ekki hvetja fólk til þess að eignast ekki börn, öll mín börn hafa verið vel þess virði. Bara ábending. Að eignast börn krefst skipulags og fjármögnunar sem ætti helst ekki að koma af liðnum ófyrirséð.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗