„Sárt og ömurlegt að heyra það“
Alexis Mac Allister, knattspyrnumaður hjá Liverpool, segir að það hafi verið sárt og ömurlegt að fá að heyra að Liverpool hygðist ekki endurnýja samning hans.
Ryan Gravenberch og Dominik Szoboszlai fengu báðir nýjan samning fyrr á árinu en Mac Allister ekki.
„Á síðasta tímabili var mér sagt að félagið hygðist ekki endurnýja hann, að minnsta kosti ekki í bili. Það var auðvitað sárt og ömurlegt að heyra það,“ sagði miðjumaðurinn við blaðamanninn Gastón Edul.
Samningur argentínska landsliðsmannsins við félagið rennur út í júní 2028, en hann telur að breytingar á bak við tjöldin gætu haft áhrif á framtíð hans.
„Nú hefur verið skipt um knattspyrnustjóra, skipt um yfirmann knattspyrnumála og nýir fjárfestar eru að koma inn í félagið.
Í dag er ég í þeirri stöðu að allt getur gerst. Mér líður mjög vel hérna.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗