Öryggisbrestur í Innu: „Treystum ekkert alveg kerfinu“
Framhaldsskólanemandi komst inn á aðganga starfsfólks og annarra nemenda í Innu og reyndi að breyta upplýsingum um einkunnir og mætingu. Ljósmynd/Þórður Arnar
Öryggisbrestur varð í Innu, sameiginlegu skráningarkerfi framhaldsskólanna, í síðustu viku sem varð til þess að nemandi komst inn á aðganga starfsfólks og annarra nemenda og reyndi að breyta upplýsingum um einkunnir og mætingu.
„Við sáum alveg, alveg svolítið af óeðlilegum færslum hjá okkur og fleiri skólar sáu það líka. Persónuvernd hefur fengið tilkynningar frá nokkrum framhaldsskólum,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, í samtali við mbl.is.
„Við gerum ráð fyrir að Inna sé búin að girða fyrir þennan öryggisbrest, þar sem að þeir eru nú búnir að opna fyrir þá innskráningu sem við höfðum áður, en við höfum svo sem ekkert fengið neina greiningu á því hverju hafi raunverulega verið breytt.“
„Inna sagðist þá hafa alveg komið í veg fyrir að þetta væri hægt en nú er þetta að gerast aftur þannig að ég veit ekki,“ segir rektor MR. mbl.is/Sigurður Bogi
Persónuupplýsingar nemenda
Sólveig segir nemanda við annan framhaldsskóla hafa komist inn í kerfi Innu og getað breytt ýmsum gögnum en hann hafi væntanlega einnig getað séð persónuupplýsingar nemenda.
Spurð hvað teljist óeðlileg færsla segir hún starfsmann við skólann hafa orðið var við breytingar á færslum á sínum aðgangi sem hann hafi ekki framkvæmt sjálfur. Það hafi greinilega verið reynt að breyta einkunnum, mætingarskráningu og ýmsu öðru.
Hún hafi verið í samskiptum við Innu sem og skólameistara annarra framhaldsskóla sem urðu fyrir áhrifum.
„Við tilkynntum þetta til Persónuverndar en Inna hafði gert það líka. En við væntum þess þá að heyra frekar í Innu varðandi þessar færslur. Við þurfum að fá aðeins betri upplýsingar um þær,“ segir hún.
Þetta er í annað skiptið á árinu sem MR verður fyrir áhrifum af öryggisbresti í Innu. mbl.is/Kristinn Magnússon
Hefur gerst tvisvar á sama ári
Þetta er í annað skiptið á árinu sem MR verður fyrir áhrifum af öryggisbresti í Innu.
„Í fyrra skiptið var það þannig að nemandi lét okkur í skólanum vita og sendi okkur ítarlega skýrslu um hvernig hægt væri að komast inn í kerfi Innu. Þetta var auðvitað tilkynnt líka til Innu og til Persónuverndar um að þarna væri möguleiki á öryggisbresti. Það var reyndar engu breytt þá en þetta var mjög alvarlegt,“ segir Sólveig.
„Inna sagðist þá hafa alveg komið í veg fyrir að þetta væri hægt en nú er þetta að gerast aftur þannig að ég veit ekki.“
Aðspurð segir hún ítrekuð tilfelli fylla starfsfólk skólans óöryggi.
„Við viljum gjarnan geta treyst þessu kerfi sem heldur utan um svona gífurlegt magn af upplýsingum langt aftur í tímann og um alla framhaldsskólanemendur á landinu, núverandi og fyrrverandi. Þannig að við treystum ekkert alveg kerfinu þegar þetta hefur gerst tvisvar á sama ári. Einhver kemst inn í þessi gögn og getur mögulega afritað fullt af viðkvæmum persónugreinanlegum upplýsingum.“
Persónuvernd kallar eftir upplýsingum frá Innu
Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar staðfestir við mbl.is að málið sé á borði Persónuverndar.
„Þegar það er að því er virðist brestur á öryggi eða aðgangi að upplýsingum sem fara til óviðkomandi, þá þarf að tilkynna það til Persónuverndar,“ segir hún. Þrjár tilkynningar hafi borist í þessu tilfelli og þar af ein frá Innu.
Þá segir Helga málið enn til skoðunar hjá Persónuvernd og hún geti því ekki tjáð sig frekar um málsatvik á þessu stigi.
„Við erum ekki komin með allar þær upplýsingar sem við þurfum að fá til þess að geta tjáð okkur um þetta, hvort og hvers lags veikleiki þetta var og af hverju hægt var að fá aðgang að upplýsingum sem þú áttir ekki að fá.“
Hún viti þó til þess að áhrifin hafi náð til 17 eða 18 skóla í heildina en óljóst sé um áhrif á einn þeirra.
„Við erum að kalla eftir upplýsingum [frá Innu] um nákvæmlega hvernig þetta virðist hafa atvikast,“ segir Helga að lokum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

