Arna Ýr fegurðardrottning og Vignir kíró selja
Arna Ýr Jónsdóttir, ljósmóðurnemi og fegurðardrottning, og eiginmaður hennar kírópraktorinn Vignir Þór Bollason hafa sett huggulega íbúð sína í Garðabæ á sölu. Íbúðin er 134 fermetrar og er ásett verð 110,9 milljónir.
Hjónin hafa komið sér vel fyrir í íbúðinni sem er á jarðhæð með stórum palli í fjölbýlishúsi í Urriðaholti. Í íbúðinni eru tvö barnaherbergi en hjónin eiga þrjú börn. Húsið var reist árið 2022 og er því allt nýlegt í íbúðinni eins og opið eldhús með eyju. Arna Ýr og Vignir eru með stílhreinan heimilisstíl og kjósa ljós viðarhúsgögn hvort sem það er í stofunni eða herbergjum barnanna. Sérstaka eftirtekt vekja barnaherbergin en þar hafa foreldrarnir nostrað við hvern krók og kima.
Arna Ýr varð landsþekkt þegar hún var valin Ungfrú Ísland árið 2015. Seinna var hún valin Miss Universe á Íslandi.
Af fasteignavef mbl.is: Maríugata 15
Arna Ýr og Vignir eru hrifin af léttum viðarhúsgögnum og passa öll húsgögnin vel saman. Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





