Arna Ýr fegurðardrottning og Vignir kíró selja

Vignir Þór Bollason og Arna Ýr Jónsdóttir hafa sett íbúð sína á sölu. Samsett mynd

Arna Ýr Jónsdóttir, ljósmóðurnemi og fegurðardrottning, og eiginmaður hennar kírópraktorinn Vignir Þór Bollason hafa sett huggulega íbúð sína í Garðabæ á sölu. Íbúðin er 134 fermetrar og er ásett verð 110,9 milljónir. 

Hjónin hafa komið sér vel fyrir í íbúðinni sem er á jarðhæð með stórum palli í fjölbýlishúsi í Urriðaholti. Í íbúðinni eru tvö barnaherbergi en hjónin eiga þrjú börn. Húsið var reist árið 2022 og er því allt nýlegt í íbúðinni eins og opið eldhús með eyju. Arna Ýr og Vignir eru með stílhreinan heimilisstíl og kjósa ljós viðarhúsgögn hvort sem það er í stofunni eða herbergjum barnanna. Sérstaka eftirtekt vekja barnaherbergin en þar hafa foreldrarnir nostrað við hvern krók og kima. 

Arna Ýr varð landsþekkt þegar hún var valin Ungfrú Ísland árið 2015. Seinna var hún valin Miss Universe á Íslandi. 

Af fasteignavef mbl.is: Maríugata 15

Eldhúsið er í opnu alrými.

Eldhúsið er í opnu alrými. Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is

Arna Ýr og Vignir eru hrifin af léttum viðarhúsgögnum og passa öll húsgögnin vel saman. Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is

Flottur en á sama tíma góður fjölskyldusófi í stofunni.

Flottur en á sama tíma góður fjölskyldusófi í stofunni. Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is

Hjónaherbergið er notalegt með rúmteppi á gólfinu.

Hjónaherbergið er notalegt með rúmteppi á gólfinu. Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is

Hér er búið að veggfóðra barnahergi á fallegan hátt.

Hér er búið að veggfóðra barnahergi á fallegan hátt. Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is

Bleiki liturinn kemur vel út í þessu stelpuherbergi. Rúmið er eins og sófi. Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅