Myndir: Ýttu Airwaves úr vör á Grund

Stemningin á opnunarhátíðinni var góð.

Stemningin á opnunarhátíðinni var góð. mbl.is/Karítas

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, setti í dag tónlistarhátíðina Iceland Airwaves á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.

Halla Tómasdóttir forseti setti hátíðina.

Halla Tómasdóttir forseti setti hátíðina. mbl.is/Karítas

Rakel og hljómsveitin Lón með Valdimar Guðmundsson í fararbroddi stigu á stokk á þessari árlegu opnunarhátíð og fluttu hátt í tíu lög fyrir gesti og íbúa heimilisins við góðar undirtektir.

Valdimar Guðmundsson úr hljómsveitinni Lón.

Valdimar Guðmundsson úr hljómsveitinni Lón. mbl.is/Karítas

Leikskólabörn frá Tjarnarskóla sátu fremst og fylgdust með því sem fram fór af áhuga. 

mbl.is/Karítas

„Þetta gekk mjög vel,“ segir Pétur Þorsteinsson, æskulýðsleiðtogi á Grund, sem tók þátt í hátíðinni.

Rakel spilaði og söng fyrir gesti.

Rakel spilaði og söng fyrir gesti. mbl.is/Karítas

Hann segir viðburðinn orðinn fastan lið í tilverunni, enda sé komið á annan áratug síðan opnunarhátíðin var fyrst haldin á Grund. „Þarna var einn sem hafði komið í 15 skipti í röð, annar í 10 skipti og annar í átta skipti,“ segir Pétur.

mbl.is/Karítas

Fyrir tónleikana brá hann á leik með Höllu uppi á sviði og ulluðu þau meðal annars framan í fólkið, sem vakti að vonum kátínu.

Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu Live, og skipuleggjandi Airwaves.

Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu Live, og skipuleggjandi Airwaves. mbl.is/Karítas

mbl.is/Karítas

mbl.is/Karítas

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅