Halla veitti neyðarkalli viðtöku
Innlent | mbl | 4.11.2026 | 12:54 | Uppfært 13:24
Sala á neyðarkallinum hófst í dag og venju samkvæmt tóku forsetahjónin við fyrsta neyðarkallinum.
Neyðarkall björgunarsveita ár hvert er eitt af stóru fjáröflunarátökum þeirra og skiptir gríðarlega miklu máli í rekstri þeirra.
Neyðarkallinn í ár er fjáraflarinn en næstu daga munu sjálfboðaliðar björgunarsveita og slysavarnadeilda um land allt bjóða neyðarkallinn til sölu.
Í ár fagnar neyðarkallinn 20 ára afmæli og er hann tileinkaður þeim þúsundum sjálfboðaliða sem hafa staðið vaktina í fjáröflun fyrir björgunarsveitir og slysavarnadeildir um allt land undanfarna tvo áratugi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


