Blóðug skóför eftir tvenna skó vöktu vafa um sekt
Héraðsdómari taldi sannað að Georgios Ntentes hefði orðið Edilsson Martin Zingara að bana í Kópavogi í nóvember í fyrra. Hann varð þó undir í klofnum dómi Héraðsdóms Reykjaness, þar sem meirihlutinn taldi verulegan vafa leika á sekt Georgios og benti meðal annars á ósvaraðar spurningar um blóðug skóför eftir tvenn ólík skópör, skort á blóðummerkjum í bifreið hans og að lögregla hefði ekki rannsakað sérstaklega hvort aðrir gætu hafa framið morðið.
Georgios var sýknaður af ákæru um manndráp í morgun, eins og áður hefur verið greint frá. Í 108 blaðsíðna dómi kemur fram að þótt margt bendi til sektar hans hafi ákæruvaldinu ekki tekist að sanna að hann hafi framið verknaðinn.
Dómurinn var skipaður þremur dómendum, þar á meðal sérfræðingi í réttarmeinafræði, Þóru S. Steffensen.
Ágreiningurinn laut ekki að því hvort Edilsson hefði verið myrtur. Dómurinn taldi sannað að annar maður hefði valdið honum banvænum áverkum, þrátt fyrir að verjandi Georgios hefði meðal annars byggt á því að ekki væri útilokað að Edilsson hefði veitt sér áverkana sjálfur.
Tvenn skóför vöktu spurningar
Eitt þeirra atriða sem meirihlutinn lagði áherslu á var að blóðug skóför eftir tvær ólíkar gerðir íþróttaskóa fundust í íbúð Edilssonar við Skjólbraut í Kópavogi.
Um var að ræða för sem samrýmdust annars vegar Adidas-skóm og hins vegar Nike-skóm sömu eða mjög svipaðrar gerðar og Georgios hafði átt.
Ákæruvaldið byggði meðal annars á þeirri kenningu að Georgios hefði verið í hvítum Nike-skóm þegar hann réðst á Edilsson, en síðan komið aftur á vettvang í svörtum Adidas-skóm.
Meirihluti dómsins taldi hins vegar ýmsum spurningum ósvarað um þá atburðarás. Meðal annars hvers vegna Georgios hefði komið aftur, hvers vegna hann hefði skilið eftir skóför eftir tvenn skópör og hvers vegna hann hefði ekki tekið með sér tvo farsíma Edilssonar sem gátu tengt hann við vettvanginn.
Í niðurstöðum dómsins er sérstaklega tekið fram að skóförin geti hæglega bent til þess að tveir menn hafi átt þátt í banvænni árás á Edilsson.
Þá liggur ekkert fyrir um að Georgios hafi snúið aftur á heimili Edilssonar eftir að hann fór þaðan að kvöldi 28. nóvember.
Ekkert blóð fannst í bifreiðinni
Meirihlutinn lagði jafnframt áherslu á að þrátt fyrir afar blóðugan vettvang hefði ekkert blóð úr Edilssyni fundist á þeim fatnaði Georgios sem lögregla lagði hald á.
Enn fremur hafði lögregla rannsakað bifreið hans sérstaklega og leitað blóðummerkja meðal annars í ökumannssæti, á gólfmottu og við fótstig bifreiðarinnar.
Sú rannsókn skilaði engum ummerkjum um blóð, þótt bifreiðin hefði verið óhrein og ekkert bent til þess að hún hefði nýlega verið þrifin.
Á sama tíma fundust ummerki um að blóð kynni að hafa verið hreinsað af svörtum Adidas-skóm Georgios.
Lögregla fann einnig blóð sem rakið var til Georgios víða í íbúð Edilssonar, meðal annars á veggjum, hurðarkörmum, baðmottum og handklæði.
Meirihlutinn taldi hins vegar ekki hægt að útiloka þá skýringu Georgios að blóðið hefði borist þangað áður en morðið var framið. Hann hafði aðstoðað Edilsson við framkvæmdir í íbúðinni og bar fyrir sig að hafa þá hlotið minni háttar skurði.
Fingraför ekki rannsökuð á hnífunum
Í dóminum er einnig vakin athygli á því að ekkert í rannsóknargögnum lögreglu bendi til þess að fingraför hafi verið tekin af skeftum þeirra þriggja hnífa sem fundust á vettvangi og borin saman við fingraför Georgios og Edilssonar.
Ekkert lá heldur fyrir um að einhver þessara hnífa hefði verið notaður við morðið.
Meirihlutinn taldi einnig ástæðu til að gera athugasemdir við rannsókn á fatnaði Georgios.
Upptökur úr öryggismyndavél sýndu að hann var í dökkblárri flíspeysu, dökkum buxum og hvítum Nike-skóm áður en hann heimsótti Edilsson. Lögregla lagði síðar hald á flíspeysu og buxur sem sambýliskona Georgios afhenti, en hvorki lágu fyrir ljósmyndir né nægileg lýsing á fatnaðinum til að staðfesta að þetta væru sömu flíkur.
Meirihlutinn taldi því óvissu ríkja um afdrif þess fatnaðar sem Georgios klæddist kvöldið sem ákæruvaldið taldi morðið hafa verið framið.
Getur hafa verið myrtur sólarhring síðar
Annað veigamikið atriði í niðurstöðunni var óvissa um dánarstund Edilssonar.
Ákæruvaldið byggði á því að hann hefði verið myrtur að kvöldi föstudagsins 28. nóvember, þegar Georgios var hjá honum.
Edilsson fannst hins vegar ekki látinn fyrr en að morgni sunnudagsins 30. nóvember. Ekki reyndist unnt að tímasetja andlátið nákvæmlega með réttarlæknisfræðilegum aðferðum.
Dómurinn taldi að Edilsson gæti hafa verið myrtur hvort heldur sem var á föstudagskvöldinu eða rúmum sólarhring síðar, að kvöldi laugardagsins 29. nóvember.
Ekki lá fyrir að Georgios hefði heimsótt hann þann laugardag.
Meirihlutinn benti enn fremur á að Edilsson hefði verið viðriðinn fíkniefnasölu og virðist hafa átt sér einn eða fleiri óvildarmenn í tengslum við fíkniefnaviðskipti.
Lögregla hafði ekki rannsakað sérstaklega hvort einhver annar en Georgios gæti hafa verið valdur að andláti hans.
Taldi framburðinn reikan en ekki nægja til sakfellingar
Georgios hafði verið margsaga um ferðir sínar eftir að hann yfirgaf heimili Edilssonar.
Hann hélt því meðal annars fram við lögreglu að hann hefði farið í Sundlaug Kópavogs, en upptökur úr eftirlitsmyndavélum staðfestu ekki að hann hefði farið inn í laugina.
Síðar sagðist hann hafa setið í bifreið sinni við sundlaugina og ætlað að taka þátt í pókermóti í farsíma.
Við rannsókn lögreglu kom hins vegar í ljós að engin notandavirkni hafði verið í pókerforritinu á þeim tíma sem hann sagðist hafa spilað.
Meirihluti dómsins taldi framburð Georgios um þetta reikan og ósannfærandi, en benti á að lögregla hefði ekki rannsakað sérstaklega hvort hann hefði áður ruglað saman sundferðum og þátttöku í pókermótum, eins og hann hélt fram.
Einnig þótti grunsamlegt að Georgios hefði hent hvítum Nike-skóm sínum skömmu eftir atburðinn. Á móti var litið til þess að hann og fjölskylda hans voru að undirbúa flutning úr landi og höfðu að eigin sögn verið að losa sig við gamla muni.
Taldi ekki hægt að sakfella
Í niðurstöðukafla dómsins segir að það horfi einkum til sakfellingar að Georgios hafi verið á heimili Edilssonar umrætt kvöld, verið margsaga um ferðir sínar, skipt um skó síðar um kvöldið og átt skó sem samrýmdust blóðugum förum á vettvangi.
Á móti vegi hins vegar að engar beinar sannanir liggi fyrir um að hann hafi myrt Edilsson, að óvissa ríki um dánarstund og að hvorki blóð úr hinum látna hafi fundist á haldlögðum fatnaði hans né blóðummerki í bifreið hans.
Að öllu þessu virtu taldi meirihlutinn slíkan vafa leika á sekt Georgios að ekki væri önnur niðurstaða tæk en sýkna.
Vegna sýknunnar var bótakröfum aðstandenda Edilssonar vísað frá dómi og allur sakarkostnaður lagður á ríkissjóð, þar á meðal tæplega ellefu milljóna króna málsvarnarlaun verjanda Georgios.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

