Silfrastaðakirkja snýr heim

Innlent | mbl | 4.11.2026 | 13:26

Silfrastaðakirkju var komið fyrir á vörubílspalli til flutninga í dag frá Sauðárkróki og að Silfrastöðum í Blönduhlíð. Mbl.is/Páll Friðriksson

Silfrastaðakirkja snýr heim á ný en hún var tekin af grunni í október 2021 og flutt á Sauðárkrók þar sem unnið var að endurbótum hennar.

Kirkjan var byggð árið 1896 og hafði til ársins 2021 staðið í Blönduhlíð í Skagafirði.

Hafði hún hvílt á eins konar grjótpúða á jörðinni og var fótstykki hennar orðið mjög fúið og gólfið sigið. 

Kirkjan er að grunnformi áttstrend og klædd sléttu járni. Á sex hliðum eru bogadregnir steypujárnsgluggar.

Frá flutningi kirkjunnar 2021.

Frá flutningi kirkjunnar 2021. Ljósmynd/Drífa Árnadóttir

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅