Arnar Gunnlaugs útilokar að landsliðsmenn fari aftur á fyllerí - „Maður fer í hefndargír og verður reiður“

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, ræddi agabrot leikmanna í síðasta landsliðsverkefni þegar hann kynnti hópinn fyrir komandi leiki gegn Búlgaríu og Lúxemborg.

Mikil umræða skapaðist í síðasta verkefni þegar leikmenn brutu agareglur landsliðsins með áfengisdrykkju. Arnar segir málið hafa verið tekið föstum tökum og að ekki verði um endurtekningu að ræða.

„Ég veit að þetta er að baki, þetta var tæklað af öllum sem að þessu komu. Þetta er ekki geymt. Ég skil áhyggjur stuðningsmanna af því að þetta muni koma fyrir aftur.“

„Þetta mun ekki koma fyrir aftur á minni vakt,“ sagði Arnar ákveðinn en allir sem þeir sem eru sagðir hafa brotið agareglur í síðasta verkefni eru í hópnum núna.

Hann var einnig spurður út í viðbrögð annarra leikmanna við því hvernig málið var leyst og hrósar Orra Steini Óskarssyni, fyrirliða.

„Í svona stórum hópi væri mjög heimskt að halda því fram að einn eða tveir væru ekki ósáttir við hvernig tekið var á málum. Mér fannst ungur fyrirliði, við eigum svalasta fyrirliða í Evrópu. Ég talaði við eldri leikmenn og menn voru sáttir við hvernig hópurinn tók þessu.“

Arnar sagði að ákveðið hefði verið að horfa á mannlegu hliðina í stað þess að grípa strax til hörðustu refsinga.

„Fyrst þegar þetta kemur upp vilja menn blóð. Það er mannleg hegðun, maður fer í hefndargír og verður reiður. Það býr miklu meira að baki en að leikmenn séu prakkarar.“

„Við fórum þá leið að horfa á mannlega þáttinn. Eru þeir fullir af iðrun? Hvernig vilja þeir hafa framhaldið og lífið?“

Landsliðsþjálfarinn telur að það hefði ekki verið rétt lausn að senda leikmennina heim með skömm.

„Þið verðið að treysta mér fyrir því hvernig ég tók á þessu. Það átti ekki við í þessu tilviki.“

Arnar ítrekaði að hann skildi gagnrýni og áhyggjur stuðningsmanna en sagði málinu lokið innan hópsins.

„Þessar áhyggjur fólks og spurningar eiga rétt á sér. Við erum sáttir með útkomuna.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅