Halla veitti neyðarkalli viðtöku

Innlent | mbl | 4.11.2026 | 12:54 | Uppfært 13:24

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, tekur á móti fyrsta neyðarkallinum.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, tekur á móti fyrsta neyðarkallinum. mbl.is/Karítas

Sala á neyðarkallinum hófst í dag og venju samkvæmt tóku forsetahjónin við fyrsta neyðarkallinum.

Neyðarkall björgunarsveita ár hvert er eitt af stóru fjáröflunarátökum þeirra og skiptir gríðarlega miklu máli í rekstri þeirra.

Forsetahjónin bíða spennt eftir að taka á móti neyðarkallinum.

Forsetahjónin bíða spennt eftir að taka á móti neyðarkallinum. mbl.is/Karítas

Neyðarkallinn í ár er fjáraflarinn en næstu daga munu sjálfboðaliðar björgunarsveita og slysavarnadeilda um land allt bjóða neyðarkallinn til sölu.

Í ár fagnar neyðarkallinn 20 ára afmæli og er hann tileinkaður þeim þúsundum sjálfboðaliða sem hafa staðið vaktina í fjáröflun fyrir björgunarsveitir og slysavarnadeildir um allt land undanfarna tvo áratugi.

Neyðarkallinn í ár er fjáraflarinn.

Neyðarkallinn í ár er fjáraflarinn. mbl.is/Karítas

Í ár fagnar neyðarkallinn 20 ára afmæli.

Í ár fagnar neyðarkallinn 20 ára afmæli. mbl.is/Karítas

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅