Melania Trump sæmd úkraínskri heiðursorðu

Volodimír Selenski Úkraínuforseti hefur sæmt forsetafrú Bandaríkjanna, Melaniu Trump, úkraínskri heiðursorðu fyrir framlag hennar til mannúðaraðgerðanna í Oleshky í síðustu viku.

Þetta kom fram í forsetatilskipun sem birt var í dag en þar er hlutverki forsetafrúarinnar lýst sem umtalsverðu persónulegu framlagi til mannúðarstuðnings við Úkraínu.

Selenskí nefnir einnig störf hennar í þágu barna í Úkraínu, meðal annars þeirra sem flutt voru á brott frá svæðum sem Rússar hafa hernumið.

Selenskí sæmdi forsetafrúna orðu Olgu prinsessu af fyrstu gráðu, heiðursviðurkenningu sem veitt er konum sem hafa lagt sérstaklega mikið af mörkum á sviði rannsókna, menntunar, menningar og góðgerðarstarfa.

Úkraínsk stjórnvöld hafa sagt að forsetafrúin hafi gegnt lykilhlutverki í því að koma á sex daga löngu svokölluðu mannúðarvopnahléi. Það gerði kleift að flytja matvæli og lyf á staðinn og flytja á brott óbreytta borgara sem vildu yfirgefa hina stríðshrjáðu borg Oleshky á hernumdu svæði Rússa í suðurhluta Úkraínu.

Vopnahléinu lauk á sunnudagskvöld, en það er lengsta samfellda tímabilið til þessa í stríðinu sem staðið hefur í meira en fjögur og hálft ár. Melania Trump hefur sagt að um 800 manns hafi komist út úr borginni á meðan vopnahléið stóð yfir.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅